11.01.1943
Efri deild: 28. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (1975)

93. mál, hafnarlög fyrir Húsavík

Flm. (Jónas Jónsson):

Þessi fyrirspurn hjá hv. þm. Barð. var fullkomlega eðlileg. En það er um rekstrarafkomu þessa fyrirtækis eins og svo margra annarra, að það er erfitt að segja fyrirfram, hvernig þau muni ganga, því framtíðin verður að skera úr því. Viðvíkjandi því, sem hann spurði um, hvernig bryggjan hefði gengið, get ég sagt það, að hún átti að vísu erfitt í fyrstu, en hefur yfirleitt borið sig sæmilega, og mun ég gera ráðstafanir til þess að fá annaðhvort frá vitamálastjóra eða stjórnarráðinu upplýsingar handa sjútvn., en þetta mál er svo mikið í höndum stjórnarráðsins, að þar eiga að vera upplýsingar um afkomu fyrirtækisins. Þessi bryggja kostaði 1/2 millj. króna. Hún er til ágætrar hjálpar við uppskipun, en hún veitir ekki nægilegt skjól fyrir bátaflotann, og þess vegna hefur útvegurinn ekki aukizt eins og ástæða væri til. Eins og hv. dm. vita, er lítil síldarbræðslustöð á Húsavík, en það er nokkuð þröngt um hana og lítið undirlendi. Þetta er vönduð síldarbræðslustöð, en heldur lítil. Hún borgaði sig upp árið 1939. Ríkið keypti hana um það leyti, og það var svo mikið aflaár, að ríkið fékk fullborgaðan kostnaðinn við hana á þessu eina ári, en síðan kreppti að, hefur hún ekki verið starfrækt. Það er ekki hægt að stækka hana þarna, sem hún er, og þykir líklegt, ef þarna kemur stærri verksmiðja, þá verði hún notuð til annarra þarfa en síldarbræðslu, þar sem það er ekki talið borga sig að reka hana, þ.e.a.s., að þó hún hafi borgað sig sæmilega, gerir hún það ekki. meira en búið er. Það er ekki hægt að koma að meiri síldariðnaði, og ekki hægt að auka vélbátaflotann vegna skjólleysis hafnarinnar.

Þá kem ég að hinu atriðinu. Það er auðvitað ekki gott að byggja á svona tímum, og býst ég ekki við, að verk sem þetta verði gert á einu ári, enda engin ástæða til þess upp á síldarbræðsluna. vegna þess að ekki verður byrjað á byggingu verksmiðju fyrr en eftir stríð. Hins vegar hafa Húsvíkingar áhug a fyrir að byrja í sumar, og þar sem fyrirspyrjandi er útgerðarmaður, býst ég við, að hann geti getið sér til, að þar sem samningar eru fyrir því, að ríkið byggi þarna verksmiðju fyrir 10 þús. mál, sé eðlilegt, að byrjað sé á verkinu sem fyrst, til þess að gera það mögulegt að hafa síldarverksmiðju þarna og skip geti fengið afgreiðslu eftir því sem þörf er á.

Enginn getur nú sagt með vissu, hvað verður, ef farið er að byggja bryggju fyrir 2 millj. kr., Hvað verður langt þangað til verksmiðjan og vélbátarnir standa undir þessu, en það stendur ekki á Húsavík á neinu nema skjólinu.

Þetta eru þær upplýsingar, sem mér finnst ég geta gefið á þessu stigi málsins, en hitt mun ég reyna að fá uppgefið mjög fljótlega.