04.02.1943
Efri deild: 47. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1130 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)

93. mál, hafnarlög fyrir Húsavík

Jónas Jónsson:

Ég sé ástæðu til að þakka hv. n. fyrir góða meðferð málsins, fyrst ýtarlega rannsókn og svo velviljaða niðurstöðu. Ég get tekið undir það, að það sé eðlilegt, að þessi viðbót verði sett inn í frv., að á svona stóru verki sé ekki byrjað nema í samráði við ríkisstj. og vitamálastjóra.