19.02.1943
Neðri deild: 62. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1998)
51. mál, virkjun Fljótaár
Frsm. minni hl. (Ásgeir Ásgeirsson):
Herra forseti. — Minni hl. n. leggur til, að ríkið gangi í þá ábyrgð, sem hér er um að ræða fyrir virkjun Fljótaár vegna Siglufjarðarkaupstaðar. Að nokkru leyti á þessi afstaða minni hl. n. rót sína að rekja til sögu málsins. Það er sem sé svo, að þetta mál er fyrir löngu undirbúið og fullrannsakað. Og á síðasta vori voru endurskoðaðar allar áætlanir um kostnað af þessari virkjun, og málið var svo í þáltill.-formi lagt fyrir síðasta sumarþing. Það fór nú svo á því þingi, af því að það var háð milli kosninga, að það voru engar ábyrgðarheimildir samþ. eða fjárveitingar yfirleitt. En þar sem þetta mál var aðkallandi, þá munu leiðandi menn Siglufjarðar hafa leitað til einstakra þm. og þingflokkanna og fengið þær undirtektir undir málaleitanir sínar, að þeir réðust þegar í að láta vinna ýmis konar byrjunarvinnu til framkvæmdar virkjuninni. Þessi virkjun er því í raun og veru hafin. Og vegna þessarar forsögu einnar saman tel ég mjög varhugavert að svipta Siglufjarðarkaupstað þeirri ábyrgð, sem kaupstaðurinn hafði fulla ástæðu til að gera ráð fyrir, að fengist.
Það er mikið að ganga í ábyrgð fyrir 6 millj. kr. En ábyrgðin getur ekki miðazt við fjárhæðina eina. Áhætta ríkisins miðast aðallega við það, hversu arðvænt fyrirtæki það er talið, sem gengið er í ábyrgð fyrir. Og eftir útreikningum kunnugra manna, rafmagnseftirlits ríkisins og Steingríms Jónssonar rafmagnsstjóra, sem er allra manna kunnugastur framkvæmdum þessara mála hér á landi, þá er hér um að ræða ódýrustu virkjunina, sem hægt er að framkvæma fyrir Siglufjarðarkaupstað. Með því að virkja Fljótaá, jafnvel þó að á dýrum tíma sé, þá er talið, að rafmagn á Siglufirði verði ekki dýrara en annars staðar. Siglufjörður er að vísu ekki mannmargur. En það tjáir ekki að miða í þessu efni við mannfjöldann einan, því að á Siglufirði er meiri verksmiðjurekstur en í nokkrum öðrum stað tiltölulega hér á landi, miðað við íbúatölu. Svo að þessi virkjun er ekki eingöngu til þarfa þess fólks, sem á Siglufirði býr, til ljósa, suðu og hitunar, heldur líka til þess stórfellda iðnrekstrar, sem þar er um að ræða og búast má við, að aukist.
Ég hef fulla samúð með þeim till., sem nú er farið að brydda á og eiga rót sina að rekja til n., sem starfar að rafmagnsmálum og einkum fjallar um þau mál á þeim grundvelli, að það eigi að taka rafmagnsframkvæmdirnar í landinu sem eina heild. En eftir viðtölum, sem minni hl. fjhn. hefur átt við rafmagnsfræðinga, sérstaklega Steingrím Jónsson rafmagnsstjóra, þá fellur Fljótaárvirkjunin vel inn í það heildarkerfi, sem mþn. í rafmagnsmálum gerir ráð fyrir, að stefnt verði að Siglufjarðarbær mundi verða aflögufær um rafmagn. Og ekki allfjarri Skeiðsfossi liggja þorp og kauptún, sem hægt mundi vera að leiða rafmagn til frá þessari virkjun. Auk þess hafa þeir sérfræðingar, sem við höfum talað við, lagt áherzlu á, að það sé kostur, þegar hugsað er fyrir heildarkerfi fyrir landið í framkvæmd rafmagnsmálanna, að rafstöðvarnar séu nokkuð dreifðar, vegna þess að þá er skiljanlega minni hætta á, að bilanir hafi áhrif á stórum svæðum og verði til mikilla óþæginda. Og mér hefur verið tjáð af kunnugum mönnum, að inn í það stóra kerfi, sem ætlað er, að nái yfir allt Norðurland, allt austan úr Þingeyjarsýslu og vestur í Húnavatnssýslu og um Borgarfjörð og allt í austursveitir Suðurlands, þá muni ekki vanþörf á að hafa a.m.k. fjórar stöðvar, og þar falli Fljótaárvirkjunin vel inn í og virkjun Andakílsfossanna einnig, sem mun vera til umr. á þessu þingi. En Vesturland og Austurland eiga að vera kerfi fyrir sig. Þegar alls þessa er gætt, að þetta mál, virkjun Fljótaár, var komið það langt á veg, þegar mþn. í rafmagnsmálum var sett, að Siglufjarðarbær hafði fulla ástæðu til að ætla, að bærinn mundi fá fulla ábyrgðarheimild til þessarar virkjunar og réðst þegar í að byrja á að framkvæma þessa virkjun, og þegar hins vegar þess er gætt, að þessi virkjun getur fallið inn í virkjunarkerfið, sem nú er verið að undirbúa, og þegar þess enn fremur er gætt, að sveitir, sem liggja þarna nálægt, og þorp, sem einnig eru þarna nálægt, gætu orðið rafmagnsins frá þessari virkjun aðnjótandi, þá fæ ég ekki séð, að árekstrar þurfi að vera milli Siglufjarðarkaupstaðar og mþn. í raforkumálum út af þessu máli. Ég játa, að ég er ekki svo inni í þessum málum, að ég geti rætt þau til hlítar í einstökum atriðum eða gert samanburð á tölum í því efni. En hér er a.m.k. einn hv. þm., sem þekkir þetta mál allt frá rótum. Og um upplýsingar í einstökum atriðum verð ég þess vegna í þessu máli að vísa til hans. En á það legg ég áherzlu, þó að sú ábyrgð, sem hér er getið um, sé að vísu há, 6 millj. kr., þá er það svo, að áhætta ríkissjóðs vegna þessarar ábyrgðar verður ekki að sama skapi mikil sem upphæðin er há, ef um virkjun er að ræða, sem getur vel borið sig. Og það er mér tjáð af sérfræðingum, að á því sé ekki vafi, að þessi virkjun geti borið sig.