03.03.1943
Neðri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

51. mál, virkjun Fljótaár

Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):

Ég hefði nú helzt viljað mælast til þess við hæstv. forseta, að þessari umr. yrði frestað, því að við í meiri hl. fjhn. hugsum okkur að bera fram brtt. við frv. í þá átt, að fylgt sé sömu reglu um þessa ábyrgð, sem hér á auðsjáanlega að samþ., eins og annars staðar hefur verið um svipaðar ábyrgðir, nefnilega að ekki sé gengið í ábyrgð fyrir meira en svarar 80% af stofnkostnaði.