04.03.1943
Neðri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (2023)

51. mál, virkjun Fljótaár

Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):

Herra forseti. — Það hefur nú sýnt sig, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, hefur meirihlutafylgi í þessari hv. d., og er ekkert við því að segja. En við, sem höfum skipað meiri hl. í fjhn. í þessu máli, teljum réttlátt, að það fylgi sömu lögum um þessa ábyrgð eins og gilt hafa um slíkar ábyrgðir undanfarið, að hámark verði sett um það, hvaða stofnkostnað ríkissjóður ábyrgist. Það hefur verið venja að hafa það 80%. En við höfum fært það upp í 85% eftir till. aðstandenda málsins, og teljum ekki skipta miklu máli, þótt sú breyt. verði á gerð. Ég vænti þess vegna, að hv. þd. geti fallizt á þessa breyt.