17.03.1943
Neðri deild: 77. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

8. mál, vegalög

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Þetta er áframhaldandi misskilningur hjá hv. þm. Snæf., sem ég býst ekki við, að leiðréttist á þessum fundi, en ég veit, að hv. þm. getur áttað sig á þeim misskilningi, ef hann. vill, þegar þessum fundi er lokið. Því að hér er um menn og till. að ræða, sem ekki höfðu komið fram við hina fyrri sætt, en komu fram síðar, og ekki er búið að sættast við fyrr en nú. Og ef vegna þess ættu allir hv. þm. að koma með nýjar brtt., sem þó hafa fengið fram nokkrar áður hið fyrra sinn, þá næði það vitanlega ekki nokkurri átt. En hv. þm. Snæf. virðist halda því fram, að þeir, sem ekki komust að í fyrra skiptið, eigi að vera réttlausir, og þá beri að kúga og taka ekki frekar til greina óskir þeirra en hinna, sem áður höfðu fengið nokkuð af óskum sínum fram.