23.03.1943
Efri deild: 79. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)
8. mál, vegalög
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. — Ég skal ekki eyða um þetta mál mörgum orðum, en vil láta þess nú getið, að úr því að svo hefur nú atvikazt, að ýmsar brtt. hafa verið lagðar fram við þetta frv., þá leitar þessi hlutur sem aðrir einhvers samræmis, og hef ég því vaknað við að sjá þessar brtt., og því tel ég mér skylt að bera fram smávægilega skrifl. brtt. hér við 2. umr. málsins. Sú brtt. er um það að bæta í l. því að taka í þjóðvegatölu svo kallaðan Kiðjabergsveg, og er brtt. mín á þessa leið:
„Við 1. gr. A. 18. Nýr liður: Kiðjabergsvegur: Af Suðurlandsvegi hjá Hraungerði um brú á Hvítá hjá Kiðjabergi á Biskupstungnabraut hjá Fossi.“
Þetta er mjög, á alfaraleið, og brúin hjá Kiðjabergi á Hvítá er komin inn í brúal., svo að það er í mesta máta ákveðið, að þarna skuli þjóðleið vera, og svo ákveðið, að það er ekki um að villast, að það hlýtur að verða knúið fram, að þarna á vegur að vera fyrir Grímsnesinga til Flóa um Kiðjabergsbrúna, sem er á brúal. Og ef það sýnist á annað borð svo, að hreyfa eigi við vegal. á þessu þingi umfram það, sem orðið er, með því að samþykkja einhverjar brtt. enn, þá sýnist mér sanngjarnt, að þessi skriflega brtt. mín fái góðan byr.
Ég vil að öðru leyti fallast á þá uppástungu að því er snertir þessa skrifl. brtt. mína, að hún bíði til 3. umr. með það að koma undir atkv., til þess að samvinnun. samgöngumála beggja d. geti athugað hana ásamt öðrum brtt. Vil ég leggja brtt. mína fram fyrir hæstv. forseta og biðja hann að leita afbrigða fyrir henni.