25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (2104)

8. mál, vegalög

Eiríkur Einarsson:

Þó að frv. hafi komið fram á Alþingi síðar en þingsköp áskilja, hefur verið venja að veita afbrigði, en n. hefur haft þá aðferð að taka ekki til greina þær till., sem hún taldi ekki nógu fljótt fram komnar. Ég hélt, at5 það ætti ekki að fara eftir því, heldur hinu, hversu mikinn rétt till. ættu á sér. Það getur vel verið, að þær síðustu séu sanngjarnastar og þær fyrstu fjarstæðastar, og það á að fara eftir því einu, hvort er efnislega rétt að samþ. till., en engu öðru.