25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)

8. mál, vegalög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil segja hv. 1. þm. N.-M. það, að ég hef alls ekki sagt, að vegurinn frá Eskifirði til Viðfjarðar ætti að vera yfir Vaðlavíkurheiði. En þessu var breytt með þessum l., svo að nú verður vegurinn til Viðfjarðar látinn halda áfram og einnig lagður vegur yfir Oddsskarð. Í álitsskjali vegamálastjóra á þskj. 459 segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Viðfjarðarvegur einn þjóðvegur og talinn til Neskaupstaðar, en nú er horfið að því ráði að leggja hann aðeins til Viðfjarðar. En þjóðvegur milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar verður lagður um Oddsskarð, og heitir sá vegur þá Norðfjarðarvegur, sbr. tölulið 12,“ en töluliður 12 hljóðar svo: „Norðfjarðarvegur er nýr þjóðvegarkafli, 22 km á lengd“.

Ég þarf svo ekki að deila um þetta lengur. Það er illt að kenna gömlum manni að leiðrétta sig, og verður að virða honum það til vorkunnar; býst ég við, að það verði ekki heldur hægt í þetta skipti, svo að ég hætti við það.