17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)
111. mál, rithöfundarréttur og prentréttur
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Ég álít mjög heppilegt, að hér í d. er nú staddur sá maður, sem bæði er menntamaður og einn af meiri háttar lögfræðingum landsins, dómsmálaráðherrann, og getur þess vegna aðstoðað d. í meðferð þessa n1áls, sem er ekki aðeins menntamál, heldur er líka komið inn á einkaréttinn á þann hátt, sem ekki hefur þekkzt hér áður. Ég vil fyrst víkja að hinu nokkuð mikla bráðlæti hjá þessum mönnum, að þeim nægir ekki að hafa borið fram og fengið samþykkta í Sþ. till. um að rannsaka þetta efni og fá löggjöf um það, heldur telja þeir nauðsynlegt að koma fram með lagabreyt. nú þegar, eins og ekki sé hægt að bíða eftir því, að þetta margþráða lagafrv. komi. Þetta varð til þess, að ég bar fram rökst. dagskrá, sem ég hefði orðað öðruvísi, ef ekki hefði verið búið að samþykkja þessa till. í Sþ., því að það má nú telja, að grundvellinum sé kippt undan því að koma með þetta frv., úr því að það er ekki nema til bráðabirgða. Sá hugsunarháttur, sem þetta frv. byggist á, er sá, að höfundar, listamenn og listiðnaðarmenn eigi að geta fengið miklu meiri rétt en áður hefur verið hér, og það gengur svo langt, eins og líka hefur komið fram, að stærstu listamannasamtökin í landinu, kórarnir, hafa risið upp og sagt, að það eyðileggi starfsemi þeirra, ef þetta verði gert að l. Ég vildi mælast til þess, að formaður menntmn., ef hann tekur hér til máls á eftir, sem hann sjálfsagt gerir, vildi lesa bréf það, sem n. barst um þetta frá Sambandi ísl. karlakóra, svo að d. fái að heyra þau rök, sem þar eru færð fram. Ég vil benda á, að það er alvarlegt mál, þegar mótmæli koma frá mönnum, sem eru fulltrúar fyrir söngfélögin í landinu, sem líklega telja um 1000–2000 manns, og þeir fullyrða, að árangurinn af þessu frv. muni verða sá að leggja starf kóranna í rúst.
Form. menntmn. hefur nú lánað mér þetta bréf, og með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa það upp. Það er frá Sambandi íslenzkra karlakóra og undirritað af formanni sambandsins, Ágústi Bjarnasyni, sem er sonur Bjarna Jónssonar prófasts hér í Rvík:
„Framkvæmdaráð Sambands íslenzkra karlakóra hefur athugað frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 13 20. október 1905, um rithöfundarétt og prentrétt, og komizt að þeirri niðurstöðu, að verði frv. samþ. óbreytt, geti það haft lamandi áhrif á söngstarfsemina í landinu, einkum meðal starfandi söngflokka.
Starfsemi söngflokka hérlendis er eingöngu sjálfboðastarf áhugamanna og fjárhagur mjög þröngur, svo þröngur, að ekki er ótítt, að seilast þarf í vasa söngmannanna til þess að geta greitt nauðsynlegasta kostnað. Getum vér því ekki séð, að söngflokkar séu á neinn hátt færir um að mæta neinum auknum kostnaði, svo sem þeim, er af frv. leiðir. Höfum vér átt tal við nokkra söngstjóra S.Í.K., og eru þeir allir eindregið á sömu skoðun og vér um þetta mál.
Vér höfum einnig fulla ástæðu til að halda, að íslenzkum tónskáldum þyki nokkur viðurkenning í því, að verk þeirra séu flutt af kórum hér, og ætti því frekar að hvetja en letja kórana til flutnings innlendra verka.
Af þessum ástæðum leyfum vér oss að beina þeim tilmælum til hv. menntmn. Ed. Alþingis, að hún hlutist til um, að felld verði inn í frv. undanþága til handa íslenzkum söngflokkum og söngvurum frá ákvæðum frv.“
Svo mörg eru þau orð. Það líða í stuttu máli ekki nema fáir dagar frá því þetta mál kemur á dagskrá og þangað til koma mótmæli frá mönnum, sem eru fulltrúar fyrir mörg hundruð, jafnvel mörg þúsund listamenn í landinu. Það sýnir, hve grunnfærnislega þetta frv. er undirbúið, að ekki skyldi vera reynt að komast í samband við forráðamenn söngmannanna í landinu, en auðséð er, að þessir menn hafa ekki vitað um frv. og biðja svo menntmn. Ed. að bjarga sér undan þessum óvinum, sem að þeim sækja. Það þarf þess vegna meira handa söngmönnunum en þessa loðnu undanþágu, sem farið er fram á samkv. till. formanns menntmn., þeir fara fram á algerðar undanþágur frá þessum kvöðum, af því að þær hafi lamandi áhrif á starfsemi þeirra Ég geri ráð fyrir, að það komi í ljós, að þetta er ekki heppilegt, og þess vegna er það líka, að form. menntmn., sem ekki hafði tekið því ólíklega að vera með þessu frv., hefur komið með till., sem á að vera til hagsbóta fyrir söngkórana, og svo hefur frsm. ekki séð annað fært en koma líka fram með brtt., en svo loðna, að það er ekkert gagn að henni, en það sýnir, að hann og hans menn finna, að það er ekki hægt að halda þessu áfram nema eyðileggja söngmenntina í landinu. Ég býst við, að það yrði vafasöm ánægja yfir frv. óbreyttu og finna, að menn eiga fulla óvináttu allra söngmanna í landinu, hvort sem þeir eru í landskórum eða kirkjukórum, sem líka getur komið til mála, að haldi opinbera samsöngva.
Ég vil ekki, af því að ég geri ráð fyrir, að málinu verði vísað frá og tekið til athugunar af hæstvirtri ríkisstjórn. eftir till. í Sþ., fara nánar inn á þetta, en ég álit frumvarpið gegnsýrt af kúgunaranda. Í frumvarpinu segir: „Danslag má leika kvaðalaust á slíkum samkomum, þó að hljóðfæraleikari taki venjulega þóknun, nema félagsbundin eða föst hljómsveit leiki.“ Í stuttu máli, það getur orðið hæstaréttarmál, og ástæða til skýringa fyrir hæstaréttarmálaflutningsmenn landsins, hvort leika megi þetta eða hitt danslag. Ég ætla að benda á eitt hagnýtt atriði. Söngmennirnir benda á, að þeir geri ekki list sína sér til framdráttar. En tveir kórarnir í Rvík hafa farið til útlanda til þess að kynna landið. Þessar ferðir hafa ævinlega verið tekjuhallaferðir, eins og geta má nærri, þegar farið er með stóra hópa til annarra landa og svo ferðazt um þar. Nú er venjan, að þessir kórar haldi söngskemmtanir og selji aðganginn til þess að vinna upp þennan halla. Nú sjá allir, að þetta er ómögulegt, því að hér segir, að aðeins megi nota þessi verk, ef ekkert sé tekið fyrir það, en hér er seldur aðgangur og það meira að segja dýr aðgangur. Þetta er ákaflega flókið mál. Stundum getur það verið, að söngflokkarnir séu að vinna fyrir utanferð, sem þeir ætla að fara síðar, og þá er vel hægt að segja við þá: Þið seljið hér dýran aðgang og segist ætla til útlanda, en hver veit, hvort þið farið það nokkurn tíma. Þetta bendir á vanþekkingu þeirra, sem frv. flytja, og sýnir bezt, hve lítil brú er í því.
Ég vildi svo víkja að 1. gr. frv. og biðja hæstv. dómsmrh. um skýringu á henni. Þar segir: „Höfundur hver á eignarrétt á því, er hann hefur samið eða gert. ........ að birta og gefa út rit sín, skrifuð, prentuð eða margfölduð á hvern hátt sem er, þýða þau, sýna þau á leiksviði eða í kvikmynd, lesa þau upp, flytja í útvarp eða hagnýta þau eða koma á framfæri með öðrum hætti.“ Svo kemur 2. liður. Þar segir, að listamaðurinn hafi einkarétt á að gera eftirlíkingar og ljósmyndir af verkum sínum, og svo hefur hann enn fremur einkarétt að því að sýna verk sín opinberlega, í hvaða skyni, sem það er gert. Eins og tekið er fram í aths. mínum, hefur fram að þessu verið gert ráð fyrir, að maður, sem kaupir hlut eða fær hann gefinn, yrði um leið óvéfengdur eigandi hans. En segjum nú, að maður hér í Rvík, t.d. dómsmálaráðherrann, ætti 2 dýr málverk, annað, sem bann hefði keypt, og hitt hefði honum verið gefið á einhverjum merkisdegi í ævi hans. Það er keypt af listamanninum og borgað fullu verði. Ég geri ráð fyrir, að dómsmálaráðherrann hefði fram að þessu álitið, að hann ætti þessa mynd og mætti lána hana á sýningu, ef hann óskaði þess. Þetta bann nær einnig til þess, ef maður hefur fengið mynd að gjöf og hann langar til að taka af henni ljósmyndir til þess að gefa sínum nánustu til minningar. Hann er eins konar leigutaki að verkunum. Sérstaklega er þetta merkilegt, þegar kemur til listiðnaðar, því að hér er talað um ljósmyndir og listasmíði og þar á meðal tréskurð. Ég hef tekið eftir, að fjölda margir göngustafir, sem eigendur hafa talið sig eiga, eru útskornir, og nú kemur í ljós, að þeir eiga þá ekki og verða að fá leyfi til þess að láta þá á listiðnaðarsýningu, og það er undir höfundinum komið, hvort það leyfi fæst.
Það er mála sannast, að það er hægt að komast langt í þessari löggjöf, eins og þar sem rithöfundar geta krafizt þess að fá nokkurra aura leigu af hverri bók, sem lánuð er eftir þá út af safni. Þetta er til, og það er enginn vafi á því, að það er hugsun manna, sem ekkert hafa kynnt sér málin, heldur líta aðeins á þau frá sjónarmiði höfundanna, að koma þessu á hér.
Nú á síðustu áratugum hefur verið rætt um, að Ísland gengi í alþjóðasamband rithöfunda, en það hefur ekki verið gert vegna þess, að það hefur verið álitið, að okkar fámenna þjóð hefði ekki ráð á því, en þetta hefur verið bætt upp með því, að ríkið hefur borgað meira og minna fastan styrk til allra þeirra manna, sem eitthvað hafa gert í þessu efni. Þess vegna er þetta frv. byggt á algerðum misskilningi, því að þegar tónskáldin fá ríkulega borgað hjá þjóðfélaginu fyrir verk sin, er ekki nokkur meining, að með einkaréttarákvæðum sé gengið svo frá, að ekki sé hægt að nota þau. Það kom fram hjá frsm., að hugsanagangur hans er ekki tengdur því, sem hentar hér á landi eða vestan megin við Eystrasalt, og þess vegna er ekki von, að hann viti þetta frekar en annað, sem hér gerist í þessum málum.
Ég býst við, að þegar menn athuga þetta, muni þeim þykja heppilegt að láta þetta mál hvíla sig hluta úr ári a.m.k. til betri rannsóknar.