18.03.1943
Efri deild: 76. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í B-deild Alþingistíðinda. (2165)

111. mál, rithöfundarréttur og prentréttur

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég skal vera stuttorður, því að allt liggur málið miklu greinilegar fyrir, síðan hæstv. dómsmrh. hélt ræðu gær. Ég vil aðeins undirstrika það, að með samþykkt frv. lýsir Alþingi í rauninni yfir vantrausti sínu á hæstv. ríkisstj., því að fyrir skömmu var samþ. þál. í Sþ., sem fer mjög í líka átt og frv. þetta. Það er því að vantreysta hæstv. ríkisstj. að fara að samþykkja frv.

Það er viðurkennt af hv. þm. S.-Þ., að hann mundi hafa orðað dagskrártill. sína öðruvísi, ef hann hefði þá vitað um, hvernig afgreiðslu hin hliðstæða þáltill. hefði fengið í Sþ.

Ég vil nú bera fram brtt. við þessa dagskrá, svo hljóðandi:

Dagskrártill. orðist svo:

Í trausti þess, að ríkisstjórnin verði við þeirri ályktun Alþingis að hraða eftir því, sem frekast eru föng á, undirbúningi heildarlöggjafar um höfundarétt og listvernd og leiti þar um tillagna frá Bandalagi ísl. listamanna, telur deildin ekki tímabært að taka afstöðu til frumvarps þess, sem fyrir liggur, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.

Ég vona, að hv. dm. séu mér sammála um, að þetta sé heppilegasta lausnin á málinu.