12.01.1943
Efri deild: 29. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (2196)

100. mál, alþýðutryggingar

Flm. (Brynjólfur Bjarnason):

Þetta mál er svo einfalt, að það þarf engra skýringa við. Ég geri ráð fyrir, að flestum finnist, að iðgjöld Sjúkrasamlags Rvíkur séu nú orðin nokkuð há og þau megi gjarnan vera lægri. Það mundi því þykja illt, ef þau yrðu hækkuð enn meir. Það er þó svo, að þau iðgjöld, sem nú eru, hafa verið ákveðin svona lág í trausti þess, að samlagið fengi aukin framlög frá hinu opinbera. Þegar iðgjöldin voru ákveðin, var ákveðið að reyna að fá lækkuð daggjöld á sjúkrahúsum ríkisins, þ.e. að þau yrðu ekki hækkuð, frá því sem þau voru á fyrra hluta þessa árs, en þau áttu að hækka fyrir síðara hluta ársins. Þetta tókst, en það nægir ekki.

Það var því einnig ákveðið að reyna að fá aukin bein framlög ríkis og bæjarsjóðs til samlagsins, og því er þetta frv. komið fram. Þessi útgjaldaaukning nemur 2 kr. á hvern tryggðan mann. Hámark þess, sem ríki og bæir leggja nú fram fyrir hvern tryggðan mann, er 10 kr., og er nú farið fram á, að það hækki upp í 12 kr. Þessi upphæð mun nema nokkuð á annað hundrað þús. kr. frá ríkinu, og framlag bæjarsjóða mundi verða jafnhátt. Tekjuaukning Sjúkrasamlags Reykjavíkur mundi því nema um 250 þús. kr., og þótt þetta muni allmiklu fyrir Samlagið, þá eru þetta ekki stór útgjöld fyrir ríkissjóð samanborið við ýmsar aðrar upphæðir, sem nú eru veittar til ýmissa hluta, og sérstaklega, þegar borið er saman við það, sem ákveðið hefur verið að gefa með ýmsum framleiðsluvörum til þess að lækka þær í verði, þar sem ríkissjóður hefur greitt svo tugum milljóna skiptir. Þegar ríkissjóður er fær um að láta svo mikið fé af hendi til þess að lækka framfærslukostnað manna, virðist vera eitt af því sjálfsagðasta, sem beri að leggja fé í, að gera alþýðutryggingarnar fullkomnari og þar með lækka framfærslukostnað manna. Iðgjöldin hafa áhrif á vísitöluna, og lækkun þeirra hefur því áhrif:i vísitöluna til. lækkunar.

Eins og nú standa sakir er framlag hins opinbera til Sjúkrasamlags Reykjavíkur í hámarki, því að það nemur 10 kr. á hvern tryggðan mann. Hjá öðrum sjúkrasamlögum mun þetta ekki vera í hámarki. Þetta mundi því fyrir sjúkrasamlög út um land verða meiri hækkun heldur en fyrir Sjúkrasamla g Reykjavíkur. Hins vegar mundi framlagið til sjúkrasamlaga úti um land ekki geta verið hærra en til Sjúkrasamlags Reykjavíkur og mundi að jafnaði verða talsvert lægra, eins og að undanförnu.

Þá er spurningin, hvort nokkra nauðsyn hafi til borið að hækka þann hundraðshluta af ið,gjöldum, sem hinu opinbera ber að greiða. Í frv. er farið fram á, að hann verði hækkaður í 1/3 hluta. Þetta ákvæði mundi ekki hafa nein áhrif fyrir Sjúkrasamlag Reykjavíkur, vegna þess að það mundi nú vera í hámarki, 12 kr., og mundi því ekki hafa nein útgjöld í för með sér fyrir þann aðila, sem er hinn langstærsti aðili í þessu sambandi, Sjúkrasamlag Reykjavíkur. En okkur flm. þótti nauðsyn til bera að lækka þennan hundraðshluta upp í þetta, til þess að samlagið þyrfti ekki að hafa iðgjöldin óeðlilega há til þess að ná hámarkinu, því að það hefur þótt við brenna, að iðgjöldin hafi verið höfð há til þess að ná með þessum hundraðshluta framlagi frá því opinbera, og það hefur þótt tap fyrir sjúkrasamlögin að hafa iðgjöldin lægri en svo, að hámarki framlags hins opinbera yrði náð.

Ég hygg. að ég þurfi svo ekki að fara um málið fleiri orðum. Ég hygg, að málið sé svo einfalt, að það sé nokkurn veginn skýrt fyrir hv. þdm. Vil ég leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.