09.12.1942
Efri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (2212)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, gengur í þá átt, eins og fyrirsögn þess segir til, að stækka lögsagnarumdæmi Rvíkur og miðast fyrst og fremst við það, að sá einn þriðji hluti landsmanna, sem í Rvík býr, fái rýmra olnbogarúm en fram til þessa hefur verið, einkum varðandi ýmiss konar ræktunarframkvæmdir. Þeim, sem bæjarmálausn Rvíkur eru kunnugir, hefur lengi verið það vel ljóst, að landrými bæjarins er orðið allt of lítið, það, sem hægt er að ætla til þessara nota. Bærinn hefur nú þegar úthlutað öllu eða langsamlega mestu því landi, sem hann hefur umráð yfir og hægt er að veita á erfðafestu, þannig að borgararnir sjálfir geti tekið það til ræktunar. Og athöfnum bæjarmanna í þessum efnum hefur yfirleitt verið allt of þröngur stakkur skorinn, og langt hefur verið frá því, að hægt hafi verið að fullnægja eftirspurn, sem eftir þessu hefur verið um mörg ár.

Það þarf ekki að fara um það mörgum orðum, að það er lífsnauðsyn, að bæjarbúar geti haft nokkurt athafnafrelsi í þessum efnum, bæði um ræktun til eigin nota, til sumarbústaða, til hóflegrar útiveru og til mjólkurframleiðslu á bæjarlandinu o.s.frv. Það liggur í augum uppi, að velferð þeirra 40 þúsund manna, sem hér búa, er að miklu leyti komin undir því, að þeir hafi möguleika til athafna í þessum efnum.

Aðdraganda þess, að frv. þetta er hér flutt og er takmarkað við þau lönd, sem þarna eru talin, er rækilega lýst í grg. frv., og skal ég því ekki fara um hann fleiri orðum á þessu stigi, heldur eingöngu vitna til grg. En ég hygg, að sanngjarnir menn hljóti að álita, að hér sé sízt of langt farið, heldur mætti um það deila, hvort ekki væri ástæða til frekari aðgerða og frekari stækkanar lögsagnarumdæmisins en hér er ráðgerð, og má færa að því mörg og sterk rök. Flm. frv. hafa þó ekki að svo stöddu farið lengra en í frv. er lagt til, fyrst og fremst vegna þess, að ætlunin er að reyna að sneiða hjá óþörfum deilum um þetta mál og fara ekki lengra en hægt er að sýna fram á, að bærinn hefur alveg ótvíræða sanngirniskröfu til.

Ég vonast til þess, að hv. þd. taki þessu máli vinsamlega og vísi því að lokinni umr. til 2. umr. — til skjótrar afgreiðslu — og til allshn.