09.12.1942
Efri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Það er ljóst, af hvaða toga aðfinnslur hv. þm. Str. eru gerðar. Það er, eins og vant er, umhyggjan fyrir Rvík, sem lýsir úr hverju orði hjá honum. Þegar hann var forsrh., hafði hann tækifæri til að afreka mikið Rvík til hagsbóta. Enginn varð raunar var við, að hann gerði það þá. Nú vill hann reyna að hafa þau kaup af bænum, sem hann kallar óhagkvæmt tilboð, en sé það svo, skil ég ekki kapp hans að láta heldur sveitarfélagið ganga í kaupin. Sannleikurinn er að vísu sá, að verðið á þessum Korpúlfsstaðajörðum, sem hreppurinn sækir eftir, er hlutfallslega margfalt lægra en það verð á Grafarholti, sem þessi hv. þm. byrjaði á að vita stjórn bæjarins fyrir að hafa ekki tekið. „Eitt rekur sig á annars horn“, eins og þar stendur. — Aðalatriðið í þessari ræðu hans hvílir á misskilningi á till. um eignarnámið. Hann veit þó eins og aðrir lögfræðingar, að eignarnámskvöð liggur á öllu landi, sem þarf til vegagerða, og í hafnarlögum eru jafnan veittar eignarnámsheimildir á tilteknum lóðum um óákveðinn tíma, svo sem þörf krefur. Enn fleiri dæmi þess eru og, að dregizt hefur að beita eignarnámsheimildinni.

Eftir eignarnámsheimild á Grafarholti er nú sótzt, til þess að verðið fari ekki upp úr öllu valdi, þannig að það mundi aftur auka verðbólguna eftir kenningu háttv. þm. Str., jafnskjótt sem reglur verða settar um notkun jarðarinnar, þá fellur verðið af sjálfu sér. Menn þurfa ekki annað en sjá sumarbústaðina, sem þotið hafa upp í því landi með fram hitaveituskurðinum, til þess að sannfærast um, að ekkert vit er í að láta framvegis slíkt hækka verð jarðarinnar. Ef bærinn fær jörðina, þá er hægt að koma í veg fyrir þetta, svo að skipulagning og verð á henni haldist hvort tveggja með skaplegum hætti.