22.01.1943
Efri deild: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (2227)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Forseti (ÞÞ):

Ég mun verða við tilmælum hv. 6. þm. Reykv. um að taka þetta mál á dagskrá á næsta fundi, en vil geta þess, að fundur verður ekki í þessari hv. d. á morgun, enda er vafasamt, hvort nál. minni hl. í málinu gæti verið tilbúið þá, þar sem prentun þess hefur tafizt vegna rafmagnsbilunar. En á mánudaginn verður þetta mál vissulega sett á dagskrá, enda er það þetta mál, sem liggur nú næst fyrir að taka á dagskrá.