28.01.1943
Efri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Jónas Jónsson:

Ég vildi segja fáein orð um þetta mál við þessa 3. umr. Um þetta mál hefur verið nokkur reipdráttur og verður sjálfsagt áfram, eins og alltaf er, þegar kaupstaðirnir eru að færa út lögsagnarumdæmi sín, og það er í sjálfu sér jafneðlilegt, að hrepparnir séu á móti þessu eins og að bæirnir vilji stækka. Ég get ekki neitað því, að ég get vel skilið, að bóndinn í Grafarholti, sem býr á ættaróðali sínu, sé á móti þessu, en það verður að meta þetta eftir því, hvort gagnið er meira.

Ég ætla nú að segja nokkur orð um það, hvers vegna ég vil, að bæirnir hafi sitt land, en ég vil líka benda á það, hvers vegna ég tel, að bæirnir megi muna það, að sveitirnar hafa líka sínar réttmætu kröfur og sín mál. Ég álít mjög óviðkunnanlegt, að í blöðum a.m.k. tveggja flokka hér í Rvík hefur að undanförnu verið lagt mjög fast á móti því, að verð innlendu framleiðslunnar væri bætt og höfð um það óviðurkvæmileg orð. Þess er þar að engu getið, að það fé, sem þannig er lagt fram, fer ekki allt til framleiðenda, heldur líka að nokkru leyti til bæjarbúa, því að það gerir vörurnar ódýrari til þeirra. Þetta er því ekki eingöngu ósanngirni, heldur líka röng rök. Ég segi, að það, sem hér kemur fram, er sams konar ósanngirni eins og hjá sveitunum, ef þær vildu ekki láta eftir land handa bæjunum. Áður en ég fer lengra, vil ég segja það, að allt okkar líf mótast af baráttunni um skiptingu stríðsgróðans. Nú hefur stríðsgróðinn komið til sumra manna í bæjunum, svo að skiptir hundruðum þúsunda kr., en þegar kemur að því að greiða bætur til þeirrar stéttar þjóðfélagsins, sem engan stríðsgróða hefur fengið og engin 30% á laun sín, koma harkaleg ummæli frá Alþfl. og Kommúnistafl. En ég vil segja það, að fólkið í bæjunum getur ekki ætlazt til skilnings á sínum málum, ef það sýnir aðeins ósanngirni í málum sveitanna.

Ég vil þá lýsa skoðun minni á því, hvers vegna ég tel alveg sjálfsagt, að Rvík færi út kvíarnar, þótt það kosti næstu hreppa nokkrar fórnir. Úr því að hér í Rvík búa 40 þús. manns, og líkur eru til, að verði hér, er það nauðsynlegt, að þeir, sem vala upp í þessum bæ, þurfi ekki ætíð að vera lokaðir á steinsteypugötunum í Rvík. Sem gamall kennari vil ég segja, að það hefur aldrei tekizt hér á Íslandi að ala fólk upp þjóðlega nema í sambandi við ræktun. Ég er ekki að segja það Rvík til lasts, en ég veit ekki til, að skáld hafi risið þar upp. Þar er margt duglegra manna, framkvæmdamenn, skipstjórar, smiðir o.s.frv. Íslendingum hefur ekki tekizt að fá þann þroska út úr bæjarlífinu, sem fæst við það að alast upp við ræktun og dýr, en það er sá þroski, sem hefur mótað þjóðlíf okkar í þúsund ár. Ég vil ekki halda því fram, að þessir 40 þús. menn eigi að fara að setja upp bú, en þetta fólk kemur sér upp sumarbústöðum. Það er dýrt, en það gerir það til þess að vera á grasi með börn sín, og í sambandi við þetta stundar það garðrækt og trjárækt. Ég veit um mann, sem á sumarbústað hér fyrir innan bæinn og er með 20 ára starfi búinn að koma upp trjálundi við hús sitt, á stað, þar sem áður voru melar. Það er þessi röksemd, sem mælir með því, að Rvík og Akureyri fái land, og það verður að vinna að því, að þetta land verði ræktað og prýtt.

Ég vil ekki neita því, að ef fólkið í bæjunum tekur sig saman um að koma fram eins og greinarnar í Alþýðublaðinu og Þjóðviljanum benda til, ef sveitamenn sjá ekkert nema kulda og skilningsleysi, neyðast þeir til að sýna hörku. Sá blær, sem er kominn hér á stjórn iðnaðarmálanna, er hættulegur. Það lá við borð, að það vær í lögleitt hér á Alþingi, að ekki mætti smíða hlöðu nema af fagmanni með bæjarkaup. Ef þetta hefði verið gert, hefði ekkert verið smíðað í sveitunum. Það er búið að búa svo skammarlega um iðnaðarlöggjöfina, að það er fjöldi manna, sem langar til að vinna, en fær það ekki. Sú löggjöf er til skammar og skaða, og mig langar ekki í meira af því tæi. Ef ungur maður má ekki fara með rafmagn eða smíða, þá er bara bezt, að við segjum aftur: „Það erum aðeins við, sem megum framleiða mjólk og kjöt.“ Ég álít ekki, að þessi harka sé eða verði framkvæmd, en vil bæta því við, að það, að margir fulltrúar sveitanna rísa á móti þessu frv., er svar við þeirri ósanngirni, sem kemur fram í iðnaðarlöggjöfinni. Ég vona, að þetta standi til bóta, og vona, að sá tími komi, þegar skömm þykir að því, að ekki megi nema 2–3 unglingar læra árlega að fara með rafmagn, og ég vona, að ekki skapist sá skilningur, að ekki megi rækta kartöflur nema í sveit, en það getur orðið nauðynlegt að segja það, ef sveitamaðurinn má ekki smíða hús sín. Ég vona svo, að borgarstjórinn í Rvík láti rækta mikið og byggja mikið og dragi fólkið út á þetta land, sem hann vill ná í.