19.12.1942
Neðri deild: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (224)

85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Emil Jónsson:

Ég tók eftir því, að hv. 2. þm. Eyf. beindi áðan fyrirspurn til hæstv. atvinnumálaráðh., sem var fullskýr og varð ekki misskilin, og ég býst við, að hann ætli að svara, en það er um atriði, sem verður að vera alveg ákveðið. Kjötverðlagsn. hefur gefið loforð um, að verð á kjöti skuli ekki hækka meðan þessi lög eru í gildi nema með því skilyrði, að hann gefi fyrirfram samþykki sitt til þess. Nú vil ég biðja hæstv. ráðh. að lýsa yfir því, hvort hann muni leyfa nokkra hækkun á þessari vöru.