19.12.1942
Neðri deild: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (226)

85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Ólafur Thors:

Út af ummælum, sem féllu í ræðu hv. 2. þm. N.-M., vil ég upplýsa, að það er rétt, að ég talaði ekki sjálfur við hann, — ég hef yfirleitt leitt það hjá mér eftir því, sem föng eru á —, en ég óskaði eftir, að fjmrh. gerði það, og það hafði alveg sömu þýðingu og ég hefði gert það.