30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (2263)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil endurtaka það, sem ég sagði áðan utan dagskrár, að mér finnst einkennilegur hraði kominn á þetta mál, þar sem það hefur nú legið um hálfsmánaðartíma eða lengur í eins konar athugun utan þings. Svo er nú allt í einu kominn 100 mílna hraði á málið hér í þinginu. Ég býst ekki við að hæstv. forseti geti svarað því, en einhver getur kannske svarað því hér í hv. d., hvort það, að málið er svo skyndilega upp tekið nú muni vera nokkuð í sambandi við það, að tveir hv. þm., sem eru á móti þessu frv., eru nú komnir norður í land. Ég veit að hæstv. forseti stendur ekki á bak við það að neinu leyti, en mér er ekki grunlaust um, að eitthvert samband kunni að vera á milli brottveru þessara manna, og þess, að málið er tekið upp nú fyrirvaralaust. Tilefni þess, að málið var tekið af dagskrá um skeið, var það, að hv. þm. G.-K. óskaði að freista þess, hvort ekki mætti finna leið til samkomulags í þessu máli með samningum á milli viðkomandi aðila. Mér er kunnugt um það, að samningsumleitanir hafa farið fram í þessu máli, og það hafa verið lögð fram gögn í málinu af hálfu Mosfellssveitarhrepps. En mér er ekki kunnugt um það, að hv. þm. G.-K., sem stóð að því, að slíkar samningaumleitanir færu fram, telji, að þeim samtölum sé lokið. Ég vildi því spyrjast fyrir um það, hvort það er samkv. ósk hans, að þetta mál er upp tekið nú. Ég vildi nú óska þess, að þessi hv. þm. skýrði frá því, hvort hann álítur, að það sé kominn tími til þess að skera úr þessu máli hér á Alþingi, áður en lengra er komið samningaumleitunum. Enn fremur vildi ég benda hæstv. forseta á það, að fyrir Sþ. liggur þáltill. um mþn. í jarðeignamálum kaupstaða, kauptúna og s jávarþorpa. En sú till. er á þessa leið:

„Alþingi ályktar að kjósa fimm manna milliþinganefnd, er athugi og geri tillögur um, á hvern hátt megi veita kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum eignar- eða umráðarétt yfir nauðsynlegum löndum og lóðum með sanngjörnum kjörum, án þess að gengið verði of nærri hagsmunum nágrannasveita þeirra, hvernig komið verði í veg fyrir óréttmæta verðhækkun á þessum löndum og afnotarétti þeirra og hvernig tryggja megi, að verðhækkun á löndum og lóðum, sem verða kann á fyrr nefndum stöðum beint eða óbeint vegna opinberra framkvæmda, verði almenningseign.

Nefndin skili áliti og tillögum fyrir reglulegt Alþingi árið 1944. Kostnaður við nefndarstörfin greiðist úr ríkissjóði.“

Það er alveg sýnt, að verði þessi þáltill. samþykkt, þá er það fyrst og fremst hlutverk þeirrar n., að athuga mál eins og þetta. Mér hefði því fundizt eðlilegt, að frestað væri að taka ákvörðun um þetta mál hér í d., þangað til séð verður, hvort Alþingi hallast að því að samþykkja þessa þáltill. Ef hún yrði samþykkt, er það alveg sýnt, að þar er kominn rannsóknardómur, sem ætti að vera hægt að vísa þessu máli til, áður en Alþingi gengi frá því. Af þeim ástæðum, sem ég hef nú nefnt, og þeirri til viðbótar, að ég og hv. þm. Borgf. vorum að því komnir að biðja hæstv. forseta um leyfi til þess að mega nú fara upp á Akranes, til þess að vera þar á fundi, sem kjósendur okkar hafa boðað þar í dag, vildi ég biðja hæstv. forseta að fresta þessu máli. a.m.k. til morguns. Ég vil þá hér með biðja hæstv. forseta um leyfi til þess að mega fara af fundi ásamt hv. þm. Borgf.