30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Forseti (JJós):

Hv. þm. Mýr. hefur innt eftir því, hvers vegna þetta mál væri nú tekið á dagskrá. Frv. var seinast tekið á dagskrá 16. febrúar s.l. Þá fékk ég boð um það frá þeim, sem báru málið fyrir brjósti, að þess væri óskað, að málið yrði ekki tekið á dagskrá í bráð, þar sem samningaumleitanir mundu fara fram um málið. Nú hafa mér frá sömu aðilum borizt tilmæli um það að taka málið á dagskrá, og ég hef gert það án tillits til þess, að einhverjir hv. þm. kunni að vera fjarstaddir. Enda ber það við, að sumir hv. þm. leyfa sér að vera fjarstaddir, og það langt fjarri, án þess að gera skrifstofunni eða forseta aðvart.

Að því er snertir tilmæli hv. þm. Mýr. um það, að hann og hv. þm. Borgf. fái leyfi til þess að vera á fundi í kjördæmi sínu, þá er sjálfsagt að verða við þeim tilmælum. Ég skal ekki láta þetta mál koma til neinna úrslita fyrr en þessir hv. þm. hafa tækifæri til þess að vera viðstaddir aftur. En ég mun taka málið á dagskrá á morgun.