30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Við þm. hér í hv. d. höfum ekki heyrt aðrar óskir um það, að málið væri tekið af dagskrá og reynd sættaleið í málinu, heldur en þær, sem hv. þm. G.-K. bar hér fram á sínum tíma. Nú upplýsist, að málið er tekið á dagskrá eftir ósk þeirra sömu manna, sem vildu fresta því áður, og er þá ekki hægt að skilja þetta öðruvísi en að hv. þm. G.-K. hafi viljað, að málið kæmi nú á dagskrá og óskað þess. Og er það ekki svo, herra forseti? Ég vil svo taka undir það og styðja, að umr. verði frestað.