18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (23)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Mér hefur borizt skrifl. till., sem ég hygg, að telja megi, að sé frá meiri hl. 1. kjördeildar, svo hljóðandi:

„Um leið og Alþ. samþykkir að fela kjörbréfan. að láta fram fara rannsókn af tilefni vottorðs Kristjáns Jenssonar í sambandi við kosninguna í Snæfellsnessýslu, ályktar það að tala kjörbréf Gunnars Thoroddsens gilt.“

Það er ekki hægt að bera hana upp nema í einu lagi, og sú er niðurstaða meiri hl. kjörd. En ég skal taka það fram, að hv. frsm. gat þess, þegar hann afhenti till., að hann ætlaðist til, að einnig yrðu athuguð atriði, sem fram hefðu komið í umr. Hins vegar ætlast ég ekki til, að neinar umr. fari fram um till., en finni hann ástæðu til að skýra hana enn frekar, leyfi ég honum það, og þar sem það hefur tekið svo langan tíma að orða till., og hún er öðruvísi orðuð en ég hefði gert, tel ég mig hafa haft fyllsta rétt til að óska, að hún kæmi skriflega fram.