19.03.1943
Neðri deild: 79. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)

154. mál, Kennaraskóli Íslands

Sigurður Kristjánsson:

Till. á þskj. 568 er alveg sjálfstæð og segir að mínu viti allt, sem þarf um þetta að segja. Í upphafi till. segir, að til þess að fá inngöngu í 1. deild skólans skal nemandi hafa tekið inntökupróf, og vitanlega verður það inntökupróf samkvæmt reglugerð, sem þar um verður, en frá þessu er sú undanþága, að hann þarf ekki að taka inntökupróf í skólann, ef hann hefur lokið gagnfræðaprófi. Þetta er skýrt og skilmerkilegt, og við þetta þarf að mínu áliti engu að bæta, og þótt hv. n. vilji knýja inn í þetta ákvæði, sem verður í reglugerð, sé ég ekki annað en að þetta sé sjálfstætt mál fyrir sig og till. hljóti að koma undir atkv. Þótt atkvgr. verði frestað, er ekki hægt að breyta þessum till., og eins og hæstv. forseti ákvað, á vitanlega skrifl. till. að koma undir atkv.