08.04.1943
Efri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)
154. mál, Kennaraskóli Íslands
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég bar í gær fram brtt., sem var drepin af þeirri orsök, að mér skildist, að hv. þm. höfðu ekki tíma til að setja sig inn í málið.
Ég tel það alls ekki sæma, að menn megi ekki sækja skóla, þótt þeir séu bæklaðir. Hafa margir menn gefizt vel, þótt þeir væru eitthvað fatlaðir, og vil ég nefna Morten Hansen sem dæmi. Þyrfti áreiðanlega reglugerð til þess, að þetta yrði ekki misnotað. Lagt er til, að reglugerðinni verði breytt eins og 1934, og þarf það ekki að valda töfum. Ég er sammála hv. þm. V.-Sk. um, að þetta ákvæði sé komið inn fyrir einhver mistök.