09.04.1943
Efri deild: 93. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (2393)

145. mál, tollskrá o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti, — Mér þykir mjög leitt, að hv. fjhn. hefur komizt að þessari niðurstöðu, sem mér skildist af ræðu hv. 3. landsk. þm., að hafi stafað af því, að nm. annaðhvort hafi fengið rangar upplýsingar um þetta mál eða ekki athugað nægilega tollskrána. Í raun og veru er það þannig, að tollskráin er framkvæmd þannig, að allir kassar, sem fluttir eru inn sem umbúðir fyrir annað en fisk til útflutnings, m.a. kassar eða kassaefni fyrir niðursuðuvörur, eru tollaðir með 30%. Svo er og um allar dósir, sem fluttar eru inn til niðursuðu. Nú er þó í tollal., að með sérstökum undanþágum skuli heimilt að endurgreiða þennan toll að því leyti, sem þessar vörur fara í umbúðir utan um vörur, sem fluttar eru út úr landinu, bæði að því er snertir dósir og kassa. Það er hins vegar ekki leyft að endurgreiða toll af þessum hlutum, sem fara í umbúðir utan um vörur, sem seldar eru innan lands. Þetta var þannig haft á sínum tíma, til þess að það væri hægt fyrir niðursuðuverksmiðjur í landinu að keppa við erlendan markað. Erlendi markaðurinn var þá sá eini markaður, sem þessi fyrirtæki gátu selt sína framleiðslu á. Nú síðan stríðið hófst, hafa þessi fyrirtæki engan erlendan markað fyrir sínar vörur. Og þegar árið 1940 skipt var uppbótinni frá Bretlandi, þá var tekið tillit til þess, að þessi fyrirtæki misstu þennan erlenda markað. Nú er það vitanlegt þeim, sem til þekkja, að þessi fyrirtæki eiga nú um tvennt að velja, annaðhvort að berjast á móti þeim erfiðleikum að hafa misst meira en 90% af öllum sínum mörkuðum fyrir vörur sínar og framleiða enn fyrir íslenzkan markað, þar til tímarnir breytast, eða hins vegar að leggja niður framleiðslustarfsemi sína.

Ég tel það ákaflega mikið skilningsleysi af Alþ., ef það vill ekki gera hér tilslökun á, ef sú tilslökun mætti verða til þess, að þessi nýgræðingur í iðnaði landsmanna þyrfti ekki að kafna. Og vænti ég þess því, að hv. þd. samþ. brtt. mína eins og hún liggur fyrir á þskj. 629.

Ég vil leyfa mér að upplýsa hv. frsm. um það í sambandi við þetta, og get talað þar af reynslu, að pappakassa er nú, jafnvel með þessum tolli, hagkvæmara fyrir þessar verksmiðjur, ef þær eru úti á landi, að kaupa frá útlöndum heldur en kaupa sams konar pappakassa frá kassaverksmiðjunni í Rvík, sem stafar af því, að það er sárlítið dýrara að kaupa kassana samanlímda frá útlöndum heldur en að kaupa þá í Rvík og senda út á land. Liggur þetta m.a. í því, að þegar keypt er inn til landsins efni í pappakassa, þá er ekki hægt að fá efnið þannig, að það sé tilsniðið: hvern kassa út af fyrir sig, heldur verður að sníða svo og svo mikið af efninu, sem ekki verður til neins notað í umbúðir. En af því, sem af er sniðið, er þá búið að greiða innflutningsgjald og toll. Og þó að verksmiðjurnar kaupi þessa kassa tilbúna frá útlöndum og borgi af þeim 30% toll, geta þær samt fengið þá ódýrari heldur en með því að kaupa þá innanlands. Og þó að ég vilji kassagerðunum íslenzku allt það bezta, þá vil ég ekki hlúa að þeim fyrirtækjum á kostnað þeirra fyrirtækja, sem kassagerðirnar lifa á. Þessi kassagerðarfyrirtæki geta því aðeins lifað, að önnur fyrirtæki, sem af þeim kaupa umbúðirnar, kaupi af þeim þessa framleiðslu. Og það er skilningsleysi að vilja hlúa að kassagerðunum á kostnað þeirra fyrirtækja, sem gera þeim yfirleitt mögulegt að starfa.

Sama gildir um dósirnar. Það var ekki hægt fyrir íslenzku verksmiðjurnar að nota íslenzku dósaframleiðsluna, meðan hægt var að fá dósir frá útlöndum. Niðursuðuverksmiðjurnar íslenzku stóðu betur að vígi með að kaupa dósirnar frá útlöndum hálfgerðar eða fullgerðar, þó að þær yrðu að greiða af þeim þennan há, toll, heldur en með því að kaupa þær frá verksmiðjunum í Rvík, sem þó störfuðu með alls konar fríðindum frá hinu opinbera.

Ég vil því fastlega mælast til þess, að hv. d. samþ. þessa brtt. mína, sem ég veit, að hefði mætt miklu meiri samúð í hv. fjhn., ef í n. hefði ekki verið þessi skilningur, að af þessum umbúðum væri greiddur nú aðeins 9% tollur.