19.12.1942
Efri deild: 21. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (243)

85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Út af því, sem hv. 3. landsk. drap á, og ályktunum hans um greiðslu á verðlagsuppbót vegna samþ., sem gerðar voru á sumarþinginu, vildi ég upplýsa, að ég hef engan tíma haft til að athuga þetta mál. Ég hef að vísu séð í ráðuneytinu gögn þessu víðvíkjandi, en ég vil minna á það, að það eru aðeins 4 dagar síðan við tókum við stjórn, og þess vegna vona ég, að hv. 3. landsk. afsaki það, þó að ég geti ekki svarað fyrirspurnum hans. Landbrh. er því miður ekki viðstaddur, hann hefði kannske getað gefið einhverjar upplýsingar, sem ég ekki hef aðstöðu til að gefa. En það var spurning, sem því miður fór fram hjá mér, viðvíkjandi ákvæðinu um verð eins og það væri lægst á hverjum stað. (HG: já, hvernig skilja ætti þau orð í frv.). Þannig, að verð hverrar vöru haldist óbreytt eins og það var í gær á hverjum stað, jafnvel þó að það sé annað á einum stað en öðrum. (HG: En hér í Rvík á að miða við verðið eins og það er lægst í einhverri einni verzlun). Það má auðvitað deila um það, hvort á að miða við verðið eins og það er lægst í hverjum kaupstað eða hverri verzlun.

Þá var það nokkuð, sem hv. þm. Str. spurði að: Hvað ríkisstj. ætlaði að gera, ef skipasmíðastöðvar neituðu að vinna að aðgerðum vegna kauphækkunar. Ég svaraði sömu spurningu í Nd. fyrr í dag, og ég vil endurtaka það, sem ég sagði þá. Ég tel, að hækkun vísitölunnar sé svo lítill hluti af því, sem þessi verlatæði fá greitt fyrir skipaviðgerðir, (en mér er sagt, að þau leggi 60% á þá vinnu, sem þau selja), að ég álít það ekki nema sanngjarnt, að þau taki á sig einhver útgjöld í þessu sambandi. Ég tel, að þau eigi að gera það, og ég tel, að þau muni gera það. Þá lét hv. þm. undrun sína í ljós yfir því, að ríkisstj. hefði ekki lagt fram fullkomnari tillögur til þess að stöðva dýrtíðina. Ég tel, að við megum vænta nokkurrar afsökunar, þegar tillit er tekið til þess, að það eru aðeins 4 dagar síðan við komum á þing. Ég veit, að hv. þm. viðurkennir, að það þarf meira en 4 daga umhugsun til að semja till. í þessum málum, sem nokkurs virði séu og líklegar til að koma að nokkru gagni. Það hefur verið tekið fram, að það, sem hér er um að ræða, er aðeins byrjun, aðeins að stöðva okkur á þessari braut, sem við erum komin út á. Hv. þm. Str. sagði, að við yrðum að stöðva okkur, áður en vegurinn yrði of brattur, og það er það, sem við verðum fyrst og fremst að gera, hvað sem verður í framtíðinni og hvernig sem tekst með úrlausn málanna að öðru leyti.