11.01.1943
Neðri deild: 29. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (2453)
40. mál, útsvar
Emil Jónsson:
Ég kom því miður ekki nægilega snemma til að heyra alla ræðu hv. síðasta ræðumanns. En ég held þó, að hann hafi ekki sagt neitt um fyrirspurn mína nema það, sem ég heyrði.
En svar hans var ekki neitt svar. Þar eð hann leysti ekki úr fyrirspurn minni um það, hvernig fara ætti t.d. að, ef einhver hefði 150 þús. kr. tekjur á Siglufirði og jafnmikið í Rvík, og á hvorugum staðnum er vitað um meiri tekjur en hann hefur þar. Á báðum stöðunum er fullkomlega réttlátt að leggja á hann eftir tekjunum þar, en þó er óafvitandi verið að brjóta l. um stríðsgróðaskatt á báðum stöðunum.
Það hefur því ekkert komið fram í þessum umr., sem breytir þeirri skoðun minni, að óheppilegra sé vegna samræmis að jafna niður á tveimur stöðum. Það á aðeins að leggja á menn á einum stað og skipta síðan útsvarinu.
Hv. síðasti ræðumaður sagði, að það væri ekki nýmæli í l., að lagt væri á menn á tveimur stöðum. Það er rétt. En það er ekki heimilað, nema reksturinn sé algerlega aðskilinn, svo að um tvo gjaldendur er raunverulega að ræða og miðað við allt árið.
Ég er því á móti brtt. allshn., og ef haldið verður fast við þær, þá mun ég flytja brtt. við 3. umr., þess efnis, að skiptingin verði tekin fram yfir það að jafna útsvarinu niður á tveimur stöðum.