12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í C-deild Alþingistíðinda. (2476)

30. mál, einkasala á bifreiðum

Frsm. 3. minni hl. (Jón Pálmason):

Hv. þm. V.-Húnv. veik að nokkrum atriðum í fyrri ræðu minni, og skal ég nú minnast á nokkur rök hans. Hann segir, að menn blandi oft saman þessu tvennu, óánægjunni með úthlutunina og einkasölunni sjálfri. Það er rétt, þessu er oft blandað saman. En óánægjan með úthlutunina á að mínum dómi rót sína að rekja til einkasölunnar. Sú óánægja er ekki ný og ekki til orðin í tíð þeirrar stjórnar, er nýlega lét af völdum. Hún hefur verið frá því að einkasalan var stofnuð. Það hefur alltaf verið litið á það sem nokkurs konar náðarbrauð, ef einstaklingar eða stofnanir fengu bifreiðar. Þetta þekktist ekki hér áður, á meðan verzlun með bifreiðar var frjáls. Og svo er það með hverja aðra vöru, sem er í frjálsri verzlun. Það er viss pólitískur flokkur, sem stofnsetti einkasöluna, og frá honum hefur aðalóánægjan komið, síðan úthlutunarn. var kosin. En ég hygg, að það sé sama, hvaða n. eða einstaklingar úthluta bifreiðunum. Það mundi ævinlega verða meiri eða minni óánægja með þær ráðstafanir, þó að einkasala gæti verið góð út af fyrir sig. Varðandi það, að það hafi verið í andstöðu við meiri hl. Alþ., að einkasalan var lögð niður, vegna þess að hér var samþ. þáltill. um úthlutun bifreiða, þá er það engin atkvgr. um það, hvort þessi verzlun skuli starfa eða ekki. Auk þess lít ég svo á, að það sé fjarstæða að ætla að fara að skipa ríkisstj. með þál. að gera það, sem fer í bága við lögin. Í l. er tekið fram, að úthlutun bifreiða heyri undir fjmrh., og því er ekki hægt að breyta með þáltill.

Varðandi það atriði, sem hv. þm. V.-Húnv. var að tala um, að ég hefði ekki fært neinar sönnur á, að hægt væri að reka verzlun með bifreiðar á ódýrari hátt á frjálsum grundvelli en í einkasölu, þá verð ég að segja það, að það liggur í hlutarins eðli. Það eru svo mörg rök, sem að því liggja hvarvetna á sviði viðskiptanna, að það eru meiri líkur til, að vara fáist lágu verði í almennri verzlun heldur en ef hún er í einkasölu.

Hér eru tveir kaupfélagsstjórar, sem eiga hlut að máli: hv. þm. V.-Húnv., frsm. 1. minni hl. fjhn., sem vill láta endurreisa einkasöluna, og hv. 1. þm. Skagf., sem er flm. frv. Það er hægt að minna á, að alltaf þegar á að gera upp á milli þess, hvort það á að vera frjáls verzlun eða einkasala, þá vill svo undarlega til, að ýmsir menn, sem standa að kaupfélögum, vilja heldur einkasölu. Ég hef aldrei getað skilið þetta. Það virðist liggja í hlutarins eðli, að kaupfélögin gætu verzlað með þessa vöru eins og aðrar. Ég efast um, að Kaupfélag Skagf. eða Kaupfélag V.- Húnv. þyrftu að auka rekstrarkostnað sinn, þó að þau seldu 5–10 bifreiðar á ári. Þetta gildir jafnt um kaupfélög og um verzlanir, sem með þetta höfðu að gera, á meðan þetta var í frjálsri verzlun. Þá voru viss kaupfélög, sem höfðu umboð fyrir verksmiðjur og verzlanir með þessar vörur, og ég held það hafi ekki á einn eða neinn hátt verið framför.

Þá er það þetta atriði, sem ég skal víkja örlítið að, sem sé tekjur ríkissjóðs og bæjarsjóða. Það hefur vaxið í sumra augum, hve há upphæð fengist í tekjur af bifreiðaeinkasölunni. Síðan farið var að verzla til muna nú á stríðstímunum með bifreiðar hefur enn fleirum varið þetta í augum. En ég er sannfærður um, að frjáls viðskipti hefðu, án þess að bílarnir hefðu orðið dýrari, gefið miklu meiri tekjur heldur en einkasalan hefur gefið.

Viðvíkjandi því, að vöruskortur á þessu sviði sé alls ekki einkasölunni að kenna, þá er það nú atriði, sem hv. þm. V.-Húnv. getur ekkert um sagt. Ég hef mikla ástæðu til þess að ætla, að vöruskorturinn hafi einmitt verið því að kenna, að þær vörur voru teknar í einkasölu, vegna þess að miklu minna var flutt inn af þessum vörum á árunum, eftir að einkasalan var stofnuð, heldur en mundi hafa verið, ef ekki hefði verið gripið til þess ráðs. Það hefur þess vegna verið fjarri því, að þeir menn, sem hafa viljað kaupa bifreiðar í stríðsbyrjun, hafi verið nokkuð verr staddir, þó að einkasalan hefði ekki verið til. Þó að ekki hafi verið hægt að fá fluttar inn bifreiðar, síðan stríðið byrjaði, nema í gegnum einkasöluna, þá er hitt jafnvíst, að fyrir stríð hefðu fengizt fleiri bifreiðar, ef einkasalan hefði ekki verið til.

Það er ekki aðeins fyrir þessar sakir, sem þægilegra hefði verið, að einkasalan hefði ekki verið til, heldur hefði það einnig haft mikla fjárhagslega þýðingu.

Þá er síðasta atriðið í ræðu hv. þm. Hann sagði, að eins og nú væri komið, mundi miklum örðugleikum bundið að fá inn bifreiðar nema með aðstoð ríkisvaldsins.

Þetta er náttúrlega mikið rétt, og það er nú sem stendur miklum vafa undirorpið, hvað við fáum inn af bifreiðum og hvað mikil þörf er á því að bæta við bifreiðum, eins og nú er komið. En þetta er engin sönnun fyrir því, að heppilegra sé að hafa hér einkasölu á þessu sviði. Við vorum einmitt áðan að samþ. það, að öll viðskipti í þessu landi skyldu vera undir eftirliti ríkisstj., og þar með auðvitað bifreiðar sem allt annað. Svo að þeirra hluta vegna er engin nauðsyn á því að fara að endurreisa þessa stofnun, sem yfirleitt hefur verið óvinsæl í landinu. Ég fullyrði, að það hefur verið um það mjög mikil ánægja, þegar fyrrv. fjmrh. lagði niður þessa stofnun.

Þá er það atriði, sem ég vildi síðast víkja að, að jafnvel þó að það yrði ofan á hér á hæstv. Alþ., að einkasalan yrði endurreist, þá vildi ég leggja áherzlu á það, áður en það yrði gert, að lokið yrði reikningsskilum einkasölunnar, sem var, svo að mönnum gæfist kostur á að sjá, hvernig þar er umhorfs.

Ég skal ekki fara frekar út í þetta að sinni, en tel það samt mikilsvert atriði.