27.01.1943
Neðri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (2493)

30. mál, einkasala á bifreiðum

Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Ég minnist þess frá 2. umr. þessa máls, að eitt af því, sem hv. þm. A.-Húnv. hélt þá fram til stuðnings þeirri skoðun sinni, að ekki væri rétt að samþ. þetta frv., var það, hversu mikill kostnaðurinn hefði verið við einkasöluna og mundi verða. Hv. þm. taldi sennilegt, að verzlunarkostnaðurinn á þessari vöru, sem einkasölunni er ætlað að verzla með, mundi verða minni í frjálsri verzlun, ef mörg einstök verzlunarfyrirtæki og einstaklingar hefðu þessa verzlun með höndum. Hann færði engin rök fyrir því, að svo mundi verða, enda held ég, að erfitt sé að færa fram rök fyrir því, að verzlunarkostnaður verði minni, ef margir hafa þessa sölu með höndum, en það munu allir sammála um, að æskilegt sé, að kostnaðurinn verði sem minnstur, hvort sem verzlunin er í höndum ríkisins eða annarra. Þess vegna er einkennilegt að sjá hv. þm. A.Húnv. og hv. 2. þm. Rang. flytja brtt. um, að skilanefnd bifreiðaeinkasölunnar skuli starfa áfram, þó að þetta frv. yrði samþ., því að það sér hver maður, að kostnaðurinn verður meiri, ef þannig starfa tvær stjórnir samtímis við sama fyrirtækið, hver veit hvað lengi. Ég tel því fráleitt, ef menn vilja hafa kostaðinn sem minnstan, að samþ. þessa brtt.

Hv. þm. A.-Húnv. segir, að reikningshaldið hjá þessu fyrirtæki hafi ekki verið í svo góðu lagi sem skyldi. Vitanlega ætti að vera hægt fyrir hann, sem er yfirskoðunarmaður landsreikninganna, að koma á framfæri á réttum stöðum aths. um það atriði. Það er vitanlegt, að ef þetta hefur við eitthvað að styðjast, þá eru nóg ráð til að skipa því í rétt horf á annan hátt en að hafa tvær stjórnir starfandi við fyrirtækið um ófyrirsjáanlegan tíma.