27.01.1943
Neðri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (2495)
30. mál, einkasala á bifreiðum
Frsm. 3. minni hl. (Jón Pálmason):
Hv. frsm. 1. minni hl. fjhn., þm. V.-Húnv., veik að því, sem rétt er, að ég benti á, að kostnaður mundi minni með frjálsri sölu en einkasölu, en hann vildi halda því fram, að rök mín væru engin, og vil ég því endurtaka sumt af því, sem ég sagði við 2. umr. Ég get ekki séð, að þó að stórar verzlanir, sem verzla með mikinn fjölda vörutegunda, bættu við nokkrum bílum, mundi það þurfa að auka verzlunarkostnaðinn. Því gerði ég þá fyrirspurn til þeirra tveggja kaupfélagsstjóra, sem láta sér annt um þetta mál, hvort þeir vildu halda því fram, að Kaupfélag Skagf. og Kaupfélag V.-Húnv. þyrftu að bæta við sig mönnum, þó að þau seldu 5–10 bíla á ári. Það er ekki hægt að svara þessu nema á einn veg.
Það er rangt, að með brtt. okkar hv. 2. þm. Rang. um skilanefnd verði aukinn kostnaður. Við viljum bara hrein reikningsskil. Hv. þm. V.-Húnv. sagði, að ég sem endurskoðandi landsreikninganna hefði aðstöðu til að fara aðra leið, ef um óreiðu væri að ræða. Um það er það að segja, að ég hef árum saman gert aths. um ýmislegt í rekstri ríkisfyrirtækja, en meiri hl. Alþ. hefur ekki tekið þær til greina. Eitt höfuðeinkennið er, að ár eftir ár hafa verið færðar upphæðir sem sjóðseign um áramót, án þess að sjóðseignir væru til. Um aðstöðu yfirskoðunarmanna má líka benda á, að ríkisreikningurinn fyrir 1940 var fyrst tilbúinn 7. maí 1942 og er ekki afgreiddur enn. Þetta hefur verið svo langt á eftir tímanum, og bilið hefur aukizt. Þess vegna er það þess virði, að notað sé tækifærið til að fá hreint uppgjör á einu af þessum fyrirtækjum, úr því að skilan. er sett og er meira virði, að hún ljúki störfum en að haldið sé á launum hópi starfsfólks, sem ekkert verkefni hefur.
Það, sem hv. 2. þm. Rang. benti á um innkaupin, er sláandi dæmi þess, hvað það er mikil vitleysa að láta ríkið vera að vasast í svona verzlun. Eftir upplýsingum fróðra manna er ástæða til að ætla, að bifreiðaeinkasalan hafi keypt bifreiðar í Ameríku fyrir útsöluverð þar. Og t.d. um ástandið hjá þessu fyrirtæki má nefna, að nú liggja fyrir nokkur hundruð bíladekk, sem passa ekki á neinar þær tegundir, sem hér eru notaðar, en hins vegar vantar dekk fyrir þær tegundir, sem við notum. til þess að reyna að bjarga þessu við, er í ráði að breyta felgunum á sumum bílunum.
Hvað sem öðru líður, vænti ég, að það komi varla til, að brtt. okkar hv. 2. þm. Rang. um, að skilan. ljúki uppgjöri, verði felld.