27.01.1943
Neðri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í C-deild Alþingistíðinda. (2496)

30. mál, einkasala á bifreiðum

Gísli Guðmundsson:

Ég veitti því athygli áðan, að hv. 2. þm. Rang. vísaði í brtt. mína á þskj. 276. Ég hafði ekki hugsað, að þörf væri á, að ég mælti sérstaklega fyrir henni, en lýsing hv. þm. á till. var ekki með þeim hætti, sem ég hefði kosið, svo að ég vil gera grein fyrir henni.

Eins og hv. þm. mega sjá á þskj. 216, er lagt til, að bifreiðarstjórafélagið Hreyfill tilnefni einn fulltrúa í úthlutunarn., en stéttarfélag vörubílstjóra varafulltrúa. Ef bifreiðarstjórar eiga að hafa eitthvað um úthlutunina að segja, virðist það eiga að vera bifreiðarstjórar í landinu yfirleitt. Þess vegna tilnefndi ég landssamband bifreiðarstjóra, sem er enn ekki til.

Hv. 2. þm. Rang. sagði um brtt. mína, að hún væri alveg fráleit, og fann hann þeim orðum stað með þeim hætti, að hagsmunum Rvíkur mundi gert of hátt undir höfði. Tók hann það fram í því sambandi, að þörfin úti um land á bifreiðum væri sízt minni en hér. Það þarf ekki að segja mér neitt um það, ég veit, að þörfin er mjög mikil, en ég ætla, að það þurfi ekki að verða til þess að draga bifreiðarnar hingað til Rvíkur sérstaklega, þó að í n. væri einn fulltrúi af fimm frá stéttarfélagi bifreiðarstjóra hér, ekki sízt, ef hann ætti það yfir höfði sér, að landssamband bifreiðarstjóra yrði stofnað, ef hann rækti ekki skyldur sínar af alúð.