05.02.1943
Neðri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í C-deild Alþingistíðinda. (2526)
23. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Frsm. minni hl. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Ég var nú eiginlega nokkuð seinn að kveðja mér hljóðs, en ég hélt, að meiri hl. sjútvn. mundi gera grein fyrir sínu áliti, því að ég taldi meiri hl. eiga rétt á að hefja framsögu, en fyrst hann óskar ekki eftir að gera grein fyrir máli sínu, þykir mér rétt fyrir hönd okkar tveggja nm. að gera grein fyrir þeirri till., sem við höfum gert um málið, en hún er í stuttu máli sú, að frv. verði fellt.
Ég þarf ekki að rifja upp þetta mál, en það er á þá lund, að frv. um að reisa nýjar síldarverksmiðjur verði breytt á þá leið, að aftan við 1. gr., síðustu málsgrein, bætist: „Er öðrum óheimilt að reisa slíka verksmiðju, nema leyfi atvinnumálaráðherra komi til“. Verksmiðja, sem þar er átt við, er verksmiðja til þess að herða lýsi, eða m.ö.o., vinna meira það lýsi, sem nú er unnið hér á landi og flutt út. Í frv. var þetta upphaflega þannig orðað, að það skyldi þurfa leyfi Alþ. til þess að reisa slíka verksmiðju, en í hv. Ed. var þessu breytt þannig, að það skyldi þurfa leyfi ráðh., og þarf sams konar leyfi til, að því er síldarverksmiðjur snertir. Nú er það vitað mál, að við Íslendingar flytjum nær því eingöngu út sjávarafurðir, og lýsi er verulegur þáttur í útflutningi landsmanna. Á krepputímunum, þegar flestar viðskiptaþjóðir okkar settu miklar skorður við innflutningi, mátti telja, að ein vörutegund vær í sérstaklega undanþegin þessum hömlum, en það voru fituefnin, og það stafaði af því, að á þeirri öld, sem við lifum, er stöðug þörf fyrir fituefni vegna véla og annars, og við Íslendingar vorum svo heppnir, að slíkur útflutningur fór sífellt vaxandi hjá okkur og lýsið var alltaf seljanlegt fyrir viðunandi og stundum gott verð. Það er vitað, að allar þjóðir keppa að því að gera útflutningsvörur sínar sem verðmætastar með því að breyta þeim sem mest frá því að vera hráefni og yfir í það ástand, sem þær eiga að vera í, þegar þær eru notaðar að síðustu, og það er eftirtektarvert fyrir okkur, sem flytjum mest út af sjávarafurðum, að þrátt fyrir það, hve mikið við flytjum út, er verðmæti það, sem við fáum fyrir útflutning okkar, miklu minna en hjá ýmsum öðrum þjóðum, sem flytja út miklu minna magn sjávarafurða, og stafar það af því, hvað við vinnum lítið úr okkar vörum. Það getur hver maður séð, hvað þetta er óheppilegt. Í fyrsta lagi er rænt mikilli vinnu frá landsfólkinu, sem mætti því í skaut falla, og í öðru lagi verður sá erlendi gjaldeyrir, sem skapast, miklu minni en ef varan er unnin. Nú hygg ég, að þetta sýni ljóslega, hvaða fjarstæða það er að setja skorður við því, að útflutningsvörur séu unnar í landinu sjálfu, og sýni, að sjálfsagt er að stefna að því, að þeir, sem framleiða lýsi eða annað fituefni í landinu, geti framleitt. sem verðmætasta vöru.
Ég skal ekki fara út í það, hvaða ástæður menn geta haft fyrir því að vilja setja þessi höft. Ég hef heyrt um það nokkur rök utan þings, en frá þm. engin eða fá. Eitt af því, sem hefur verið haldið fram, er það, að ríkið eigi að ráða sjálft yfir þessari framleiðslu með tilliti til markaðarins erlendis, og þar af leiðandi komst þetta ákvæði inn í l., hvað snerti síldarverksmiðjurnar. Það var af því, að sú fluga hafði setzt að í höfði manna, að við réðum yfir heimsmarkaðinum hvað þessa vöru snerti. Þetta var auðvitað hin mesta fjarstæða. Það er alveg eins og ef mýfluga héldi, að hún væri nashyrningur. Það er fjarstæða að hugsa sér, að við ráðum að nokkru leyti yfir síldarmarkaðinum, þó að við höfum nokkrar síldarverksmiðjur.
Annað er það, sem ég hef heyrt haft á móti því að hafa þetta frjálst, en það er það, að svo gæti farið, að einstaklingar gætu framkvæmt þessa lýsisherzlu ódýrara en ríkisverksmiðjurnar, og þá mundi ríkið bíða tjón af því. Nú er auðvitað réttast, að sá vinni verkið, sem getur unnið það hagkvæmast og ódýrast, og í öðru lagi þarf ríkið ekki að láta taka fram fyrir hendurnar á sér að því er snertir herzlu á lýsi.
Það hefur nóg tækifæri til þess að vinna gegn því.
Af því að ég hef ekki heyrt nein rök fyrir því að setja þetta bann gegn því, að sett verði á stofn lýsisverksmiðja, álit ég ekki þörf á löngu máli um þetta.
Ég vil að lokum benda á það, að bann það, sem enn þá er í gildi, um að reisa nýjar síldarverksmiðjur, er búið sannanlega að valda þessu landi tjóni, sem nemur sjálfsagt tugum millj. króna, ef ekki miklu meira, og það væri illa farið, ef ný bönn yrðu þess valdandi, að þjóðfélagið biði áframhaldandi tjón, og ekki sízt, ef þetta bann skyldi fela í sér mjög mikið tjón fyrir atvinnulífið í landinu, því að það má búast við því að liðnum þessum stríðsárum, að ekki veiti af því, sem atvinnuvegirnir hafa upp á að bjóða af vinnu fyrir fólkið og að það verði að reyna að halda uppi þeirri vinnu, sem unnt er. Ég geri ráð fyrir því, að þau andsvör komi hér á móti, að ríkið geti veitt þetta leyfi, ef hagkvæmt þykir, — en hvers vegna á að synja mönnum um að byggja verksmiðju, ef ríkið ætlar hvort sem er eftir á að veita þeim þetta leyfi? Ef það ætlar að veita leyfið, þarf það ekki að áskilja sér rétt til þess að banna þetta. Og hvað á þetta þá að þýða? Það hafa komið fram rök gegn þessu, að einstaklingar hafi ekki vit á því og þeir muni þjóta í að byggja verksmiðjur, sem yrðu til tjóns. Svo hef ég aftur heyrt, að ríkið ætti að hafa vit fyrir mönnum, en ég hygg, að þeir menn, sem snúa sér að því að fást við útgerðarstarfsemi og verzlun með sjávarafurðir, hafi mest tök á að skilja þetta og bezta aðstöðu til þess að haga því svo, að af verði fjárhagslegur hagnaður. Það er af þessari ástæðu, sem ég og við þessir tveir nm. álítum frv. til tjóns fyrir þjóðfélagið, og það er af þeirri ástæðu, sem við leggjum eindregið til, að það verði fellt.