05.02.1943
Neðri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (2530)

23. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Frsm. minni hl. (Sigurður Kristjánsson):

Ég get stytt mál mitt vegna þess, sem fram kom hjá hv. 2. landsk. þm. og hv. þm. Siglf. Ég vil benda á það, að ef Alþ. skyldi óttast, að útvegsmenn mundu flana út í að reisa verksmiðju, sem yrði þeim fjárhagslegur baggi, eru sjálfkrafa á þetta. hömlur settar, en þegar vinnsluaflið er fyrir hendi, er ég sannfærður um, að það verður talið jafnsjálfsagt og kaldhreinsun nú, að allt lýsi, sem unnt er að herða, verði flutt út í því ástandi, hver svo sem á það. Það er áreiðanlega ástæðulaust að hefta menn í þessu. Örðugleikarnir sjálfir munu gera það.

Ég vil nefna það, að þessi hugmynd, að banna mönnum að reisa nýjar síldarverksmiðjur; hefur sáralítið fylgi nú orðið. Mörg sveitarfélög hafa reist smáverksmiðjur, sem síðan kom í ljós, að var óhagkvæmt, og það er ekki fræðileg sönnun fyrir hendi um það, hve stór verksmiðja þurfi að vera til þess, að hún beri sig fjárhagslega. Ég skal t.d. nefna, að á Alþ. — ég held 1941 flutti ég frv. til breyt. á verksmiðjul. á þá leið að fella niður 1. gr., sem felur í sér þetta bann. Einmitt núv. form. sjútvn., sem þá var og er í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins, mælti með frv. Hann stendur að vísu nú að meirihl. nál., og hv. 6. landsk. þm. líka, en þó að ég ætli ekki að fara að gera þeim upp hugsanir, býst ég við, að þeir hafi báðir gert það frekar af kurteisi við málið en að þeir haldi, að nauðsynlegt sé að banna mönnum að reisa nýjar síldarverksmiðjur.

Rök hv. frsm. meiri hl. voru ekki þess eðlis, að ég sjái ástæðu til að fara út í ræðu hans, sem að mestu leyti var endurtekningar úr grg.

Það fer fjarri því, að það sé tilgangur minni hl., að upp rísi nokkur keppinautur við ríkið. Mitt sjónarmið er, að þegar frá líður, verði það talið sjálfsagt, að hver sá, sem framleiðir lýsi í svo stórum mæli, að það borgi sig að herða það til útflutnings, fullvinni sitt lýsi. Það getur engum manni orðið til tjóns. Ég held því, að hv. d. ætti ekki að binda sig við gamlar kreddur, heldur snúast skynsamlega við því, sem framtíðin án efa ber í skauti sínu, og fella frv.