19.02.1943
Neðri deild: 62. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)
23. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Einar Olgeirsson:
Ég vildi aðeins fara þess á leit, að fyrsta dagskrármálinu yrði frestað og það tekið af dagskrá. Það er nauðsynlegt að tryggja það, að svona frv. verði ekki misnotað af stjórnarvöldunum, eins og hefur komið fyrir í sambandi við þess háttar ákvæði, t.d. á Siglufirði. Ég tel því nauðsynlegt, að málinu verði enn frestað, svo að hægt sé að koma með brtt. við það. Við þm. Sósfl. munum ekki geta fylgt frv. eins og það er nú.