06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í C-deild Alþingistíðinda. (2555)
108. mál, sala á spildu úr Neslandi í Selvogi
Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson):
Ræða hv. frsm. minni hl. gaf lítið tilefni til andsvara. Hann talaði góðmótlega um þetta mál. Hann sagði rétt vera ýmislegt, sem við nm. meiri hl. höldum fram. Hann talaði um hættu af uppblæstri þessarar landspildu, ef hún yrði ekki tekin úr friðun og seld. Við flm. álítum þessa hættu ekki til staðar. Það hefur ekki verið afsannað, að það bezta af landinu sé endurgróið. Það er ekki rétt að telja þetta land örfoka, enda er ekki sannað, að svo sé. Þótt þessir 23 menn í Selvogshreppi tali um sandfok,— ógrynni sands, sem fjúki þar heim á tún, — þá er í ofurkappi málflutningsins lögð meiri áherzla á það en æskilegt væri. Ef leitað verður frekari gagna, mun sannast, að ekki svo lítið af sandinum kemur úr rofbökkum, sem hátt ber. Ef leitað er álits kunnugra manna á þessum slóðum, mun þetta koma í ljós. Þessi sandur kemur einnig úr túngarðinum sjálfum í Nesi og kemur girðingunni ekkert við. Ég hugsa, að ekki þýði að mótmæla því.
Hitt vil ég endurtaka, að ef þessi till. eða þetta mál í heild krefst enn frekari athugunar af sandgræðslustjóra og hæstv. ríkisstj., þá hygg ég, að stór landsvæði önnur þurfi langtum meiri athugunar á þessu sviði. Ef þetta frv. verður samþ., gefur það tilefni til nýrra athugana. Tel ég það höfuðnauðsyn þessa máls, að þetta sé sem bezt athugað og girt á heppilegum stöðum, hvað sandgræðslu snertir, ekki einungis vegna þessa landsvæðis, heldur miklu fleiri landsvæða, sem blátt áfram standa í þeirri hættu að blása upp.
En að bóndinn í Nesi hafi fengið svo mikið fyrir landið, þegar hann seldi það, álít ég ekki rétt. Ég hygg rétt, að það hafi verið gróna landið, sem kom til greina. Hefur gróið víða þarna austur frá á síðari árum. Ég vil þess vegna minnast á það, sem hv. frsm. minni hl. sagði um þá, sem hann styðst við í þessu máli, sandgræðslustjóra og annan til. Allir viðurkenna, að sandgræðslustjóri hefur verið álitinn nýtur maður. En þótt hann sé sanngjarn maður, þá getur honum hlaupið kapp í kinn; það getur komið fyrir gætnustu menn. Og hvort sem það eru 23 eða 24 Selvogsmenn, sem skrifa undir þetta, og sandgræðslustjóri í ofanálag, þá er nú fokhætt um geðbrigðin ekki síður en um hin lausu og léttu jarðlög, og það ber ekki að taka allt of mikið tillit til þess. Hitt, að bóndinn í Nesi ætti kost á að fá réttingu mála sinna samkv. því, sem ég skýrði áðan frá, — það hafa komið fram harla lítil mótmæli gegn því. Og svo er hitt, sem játað er af hv. minni hl. landbn., að trygging og öryggi er í því að samþ. brtt. hv. þm. Dal. um, að ríkisstj. eigi ekki að nota heimildina nema eftir umsögn tveggja óvilhallra manna, sem tilnefndir séu af hæstarétti til að skoða landið.
Ég get tekið undir með hv. frsm. minni hl., að það er að öllu þessu athuguðu ekki svo mikið, sem ber á milli. Við viljum, að ekki sé farið í neinu geyst um aðgerðir í þessu viðkvæma landamáli, heldur með allri gætni. En það ber þá ekki sízt á milli, ef eitthvað væri verulegt, að við viljum, að einstaklingur, sem þarna er um að ræða, hafi hann orðið fyrir óréttlæti, þá eigi hann kost á að fá það leiðrétt, eftir því sem góðgjörn og víðsýn ríkisstj. sér ástæðu til að koma þeirri leiðréttingu til vegar.