12.03.1943
Neðri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)
108. mál, sala á spildu úr Neslandi í Selvogi
Frsm. minni hl. (Emil Jónsson):
Hv. frsm. meiri hl. n. nefndi hér tvö atriði, sem hann taldi rétt að fara nokkrum orðum um. Hann las úr bréfi frá fyrrv. landbrh., dags. 8. júní 193.), þar sem svo er mælt fyrir, að girðingin skuli vera í Bjarnavík. En sandgræðslustjóri hafði skoðað þetta girðingarstæði og dæmt það ófært, og tjáði hann ráðh. það álit sitt. Og upp úr því var svo gert samkomulag, sem ég hef hér í afriti, milli bóndans, sem málið snertir, og ráðh., þar sem bóndinn gengur inn á, að girt verði eins og nú hefur verið gert. Svo að þótt þetta standi í bréfi fyrrv. hæstv. landbrh. frá 8. júní 1935, þá mun það hafa verið gert að, mjög lítið rannsökuðu máli, að þessi staður, sem þar er um getið, var ákveðinn.
Út af fjörubeitinni, sem hv. frsm. meiri hl. n. vill nú segja, að allt snúist um í þessu máli, þá er það að segja, að út af fyrir sig skaðar notkun fjörubeitar ekki sandgræðslugirðinguna. En ég geri ráð fyrir, að ekki verði haldið sig við fjörubeitina eina, ef landið yrði selt, heldur yrði það allt beitt. Það er víst alveg hægt að ganga út frá því. Og bæði það, að með því að selja landið kæmist það sennilega í sömu örtröð og áður og hins vegar, að staður sá, sem upphaflega þar ætlaður til girðingarstæðis, var af sandgræðslustjóra dæmdur a.m.k. lítt nothæfur, gerir það að verkum, að ég tel varhugavert að fylgja þessu frv. og mun ekki gera það.
Hv. frsm. meiri hl. n. talaði um það sem meinsemi af Alþ., ef það vildi ekki samþ. það, sem tveir ágætir þm. héraðsins mæltu fyrir. En ég tel mig í þessu sjá annað heldur en það. Og ég veit, að hv. þm. A.-Húnv. er svo sanngjarn maður, að hann sér það líka, að hjá okkur er ekki um neina meinsemi að ræða, heldur aðeins ótta við það, að hér verði gert ónýtt gott verk, sem unnið hefur verið með það fyrir augum að forða þarna gróðri landsins frá hættu, og að hættan, sem af því geti leitt að selja þetta land, geti haft miklu víðtækari afleiðingar heldur en hv. þm. A.-Húnv. og aðrir fylgjendur málsins nú gera sér grein fyrir. Og ef maður telur möguleika á því, að þessi hætta sé fyrir hendi, tel ég óforsvaranlegt að samþ. sé að selja þetta land. Það er of mikið fyrir fjörubeit eins manns, að kannske hálft sveitarfélag verði lagt í auðn. Sérstaklega vil ég einnig taka fram, í því sambandi, að sjálfsagt væri hv. þm. fúsir til þess að vinna að því, að þessum manni væri bætt það, sem fjörubeitinni svarar eða svipað því, eftir því sem hann telur sig hafa orðið fyrir skaða í sambandi við að missa hana.
Ég hef svo ekki meira að segja um málið fyrir hönd minni hl. n.