07.01.1943
Efri deild: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (2616)
73. mál, jarðræktarlög
Gísli Jónsson:
Í tilefni af ummælum hv. 3. landsk. vildi ég mega benda honum á, að það væri hollt fyrir þingmenn, áður en gengið er til atkv., að gera sér grein fyrir, hvernig þessi ákvæði hafa verkað úti um landið þennan tíma, sem l. eru búin að standa, og hvaða samúð þau hafa fengið hjá bændum yfirleitt. Ein skýrasta sönnunin um árangurinn er einmitt sú, að við tvennar nýafstaðnar kosningar munu einmitt þeir frambjóðendur í sveitakjördæmum, sem voru fylgjandi því að afnema ákvæðið jafnvel á þessu þingi, hafa aukið með því fylgi sitt. Og sumir framsóknarmenn beinlínis lofuðu þessu við tvennar síðustu kosningar, og aðrir létu mjög líklega. Og það er skýrasti mælikvarðinn, hvað málið er óvinsælt, þegar feður og fósturfeður þessa ákvæðis eru farnir að afneita því, áður en þeir biðja um atkvæði sömu bænda, sem þeir hafa lagt þessar byrðar á. Búnaðarmálastjóri ræddi mikið þetta ákvæði í Barðastrandarsýslu á s.l. sumri, og tók hann líklega í að fylgja afnámi þess. En ég býst við, að það hafi drjúgt dregið til þess, að hann komst ekki inn á þing, að hann bar ekki gæfu til alveg að lofa þessu.
Ég held því, að hv. 3. landsk. ætti að falla frá ósk sinni um að drepa málið við þessa umr.