16.12.1942
Neðri deild: 19. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (2635)

50. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Flm. (Sigurður Þórðarson):

Frv. þetta er breyt. á núgildandi l. um dragnótaveiði í landhelgi. Það er mjög svipað frv., sem flutt var hér á Alþ. í fyrravetur. En sú breyting er þó á því, að í þessu frv. er gert ráð fyrir, að sýslun. Skagafjarðarsýslu, Eyjafjarðarsýslu og Norður-Múlasýslu sé heimilað með samþykkt að banna dragnótaveiði innan vissra takmarka, sem getið er nánar í frumvarpinu.

Það er nú svo, að manni skilst innfirðir vera umráðasvæði viðkomandi sýslna og bændur, sem eiga land að þeim, eigi þar frekar rétt til veiða en aðrir. Enn fremur má benda á, að innfirðir eru uppeldisstöðvar ýmissa nytjafiska, en dragnótaveiði spillir botninum, rótar til og spillir uppeldi fiskjarins, sem þar á sér aðsetur. Enn fremur má henda á, að smábátaveiði á sitt undir því, að innfirðir séu friðaðir með öllu. Botnvörpungar eða dragnótabátar geta farið ránshendi um sandbotna innfjarðanna og eyðilagt veiðarfæri manna. Yfirleitt verkar núgildandi löggjöf þannig, að á þeim tíma, sem dragnótaveiðar eru stundaðar, þá spilla þær veiðarfærum smábátaútvegsins og banna björg þeim, sem hann stunda. Ég fullyrði, ef Skagafjörður verður ekki friðaður fyrir dragnótaveiði, leggst niður smábátaveiði, en það eru um 50 bátar, sem róa stöðugt á firðinum, og eigendur þeirra eiga allt sitt undir því, að atvinnuvegi þeirra sé ekki spillt.

Það liggur hér frammi fyrir hv. Alþ. áskorunarskjal frá sjómönnum í Skagafirði, þar sem segir:

„Vér undirritaðir sjómenn og alþingiskjósendur í Skagafjarðarsýslu leyfum oss hér með að skora á þingmenn kjördæmisins að flytja á næsta Alþingi frumvarp um bann við dragnótaveiðum á Skagafirði. Vér erum þess fullvissir, að verði ekki dragnótaveiðar hér á Skagafirði bannaðar með lögum, þá er lokið öllum smábátaútvegi hér. Það er ekkert eftirlit hægt að hafa með veiðum þessara dragnótabáta, og stunda margir þeirra veiðar sínar á ólöglegan hátt, toga við land og hafa botnvörpu. Það má segja, að á meðan dragnótaveiði er ekki bönnuð með öllu, þá sé nokkurs konar botnvörpuveiði liðin inni á fjörðum og flóum, og vita allir, hvaða afleiðingar slíkt hefur fyrir fiskveiðar á innfjörðum.“

Áskorunarskjal þetta er undirritað af 200 mönnum. Fjölmargir þeirra eru menn, sem hafa lífsuppeldi sitt af smábátaveiði í Skagafirði, og eiga sina efnalegu afkomu undir því, að atvinnuvegi þeirra sé ekki spillt. Þeir geta ekki aflað sér stærri báta. Ef þeir fá ekki að stunda atvinnu sína í friði, þá þýðir það, að þeir verða að færa byggð sina eða breyta um framfærsluhætti, en það er ætið erfiðleikum bundið.

Það verður að hafa í huga, hvað þetta mál er geysilega þýðingarmikið og hvað öfugt það er að heyra ekki bænir þeirra manna, sem einna lakasta aðstöðu hafa í þjóðfélaginu. Ég vil því mælast til þess, að hv. Alþ. heyri bænir þeirra manna, sem svo hart eru leiknir vegna ágangs þeirra, sem meiri máttar eru. Hér er aðeins farið fram á, að innfirðir séu friðaðir fyrir dragnótaveiðum ákveðinn tíma árs. Dragnótaveiði getur haldið áfram eftir sem áður. Það er aðeins gert ráð fyrir, að hún sé bönnuð á innfjörðum, svo að hún sé ekki að spilla þar veiði og veiðarfærum manna. Dragnótabátar toga á lóðarstrengina og skera þá af sér og spilla þannig eignum manna. Hér er því um að ræða að hlusta á, þegar þeir, sem eiga erfiðast í mannfélaginu, biðja, að ekki sé gengið á réttindi þeirra, en þeim gert kleift að stunda atvinnu sina óáreittir. Og ég vona, að Alþ. beri gæfu til þess að verða við þeirri bæn. Ég bið hv. alþm. að greiða atkv. með því, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og til sjútvn.