02.03.1943
Neðri deild: 69. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í C-deild Alþingistíðinda. (2648)
50. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. - Sjútvn. hefur fengið ámæli fyrir meðferð þessa máls, og ég skal játa, að afgreiðsla þess dróst meira en rétt er. Ástæðan er sú, sem flestum þm. er kunn, að þetta mál er hart deilumál, og það hefur varla verið háð svo þing í tíu ár, að þetta mál hafi ekki verið einhvers staðar í málaskránni. Það hefur komizt misjafnlega langt, en stundum verið gerðar allverulegar breyt. á l. Það hefur í hvert sinn orðið að fjalla um það í sjútvn., og ég skal taka það fram, að það hefur virzt mjög langt bil á milli þeirra, sem lengst hafa viljað ganga, og hinna, sem fastheldnari voru. Það hefur orðið mitt hlutverk að miðla málum. Þó að ég hafi verið heldur andvígur dragnótaveiðum, hef ég ekki séð mér fært að banna þær að öllu leyti, því að hér framan af var svo erfiður hagur útgerðarinnar, að mér virtist ekki mega hindra nein tækifæri fyrir hana. Í annan stað hafði verið lagt í mikinn kostnað við útbúnað báta og öflun ,veiðarfæra. Hins vegar er það álit mitt, að dragnótaveiðin geri smábátaútgerðinni búsifjar og sé ekki hættulaus fyrir fiskstofninn.
Mál það, sem hér liggur fyrir, bar að líkt og venjulega, að langt bil var milli skoðana manna. Í sjútvn. vildi meiri hl. leggja á móti því. Þá hefði n. klofnað, og meiri hl. hefði lagt til, að frv. væri fellt. Ég vil gera þá játningu, að það var mín uppástunga, að sú meðferð yrði höfð að afgreiða málið með rökst. dagskrá, beinlinis ,með það fyrir augum, að málið yrði ekki skilyrðislaust fellt. Ef n. hefði klofnað, hefði ég komið fram með brtt., en það er ekki tímabært að ræða þær, af því að þær hafa ekki konlið fram.