26.01.1943
Neðri deild: 42. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í C-deild Alþingistíðinda. (2672)
45. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
Pétur Ottesen:
Ég á hér brtt. við þetta frv., og er hún á þskj. 270, sem útbýtt er á þessum fundi og stíluð er við brtt. á þskj. 242 frá hv. þm. V.-Húnv. og mín brtt. tekur eingöngu til 1. liðar í þeirri brtt. En auk þess eru þar, á þskj. 242, einnig till. til breyt. á 2 öðrum gr. frv., sem brtt. mín kemur ekki inn á.
Ég vil segja það um þetta mál, að ég tel það fullkomlega réttmætt, að gerðar séu af hálfu löggjafans ráðstafanir til þess að tryggja hlutarráðningarfyrirkomulag á íslenzkum veiðiskipum. Það er ekki minnsti vafi á því, að það er allmikið þjóðfélagslegt öryggi í því fólgið, að sú þróun geti orðið í útgerðinni hér á landi, að það fyrirkomulag geti rutt sér til rúms. Það er ákaflega eðlilegur hlutur, að sú tilhögun sé á höfð, að þeir menn, sem að útgerðinni standa, bæði útgerðarmenn og sjómenn. hafi þar sameiginlegra hagsmuna að gæta, þannig að þessir aðilar allir beri úr býtum hlutfallslega við þann afrakstur, sem útgerðin gefur. Með þeim hætti er áreiðanlega betur tryggt en ella, að útgerðin geti orðið sem allra raunhæfust. Tekur þetta hvort tveggja til þeirrar hliðar málsins, sem snertir aflabrögðin, og svo líka einnig og ekki síður til þeirrar hliðra málsins, sem snertir hagkvæma, hyggilega og skynsamlega meðferð veiðarfæra og annars þess, sem útgerðin krefur. Þess vegna álít ég, að það sé tryggast, að af hálfu löggjafans og allra sé sem bezt að því stuðlað, að sú þróun geti orðið að þessu leyti í útgerðinni, að þetta fyrirkomulag fáist sem bezt framkvæmt, þannig að grundvöllur sé fundinn undir það, að þetta geti helzt náð til allra greina í útgerðinni. Af því er ég alveg fullkomlega samþykkur þeirri hugsun, sem fram er komin í þessu frv., og ég tel það góðra gjalda vert, að það sé inn á þessa braut farið og reynt með slíkum hætti að stuðla að því, að þetta geti orðið.
Hér er um að ræða tryggingarstarfsemi, sem við höfðum eftir þeirri reynslu, sem fengin er og alþekkt er, um það, hversu misjafnlega gengur með aflabrögð útgerðarinnar, þannig að lagt er til, að lagt sé til hliðar fé á þeim árum, sem betur gengur fyrir útgerðinni, til þess svo að bæta upp aflahluta, þegar illa gengur um aflabrögð. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir, að útgerðarmenn og hlutarráðnir sjómenn leggi fram af aflafeng sínum nokkurn hluta og ríkissjóður komi þar á móti með nokkurn stuðning frá því opinbera, og að því leyti er þetta byggt upp á sama grundvelli eins og önnur tryggingalöggjöf hjá okkur. Það, sem þess vegna er hér um að ræða, er það, hvernig eigi að byrja þennan þátt þessarar tryggingastarfsemi, hvort eigi að hefja starfsemi á þessu sviði með því, að tryggingarnar séu frjálsar og mönnuni sé í sjálfsvald sett um það, hvort þeir vilji fara inn á þessa braut, og þeir, sem það gera, njóti þeirra hlunninda, sem felast í þessu frv., sem fólgin eru í framlögum ríkissjóðs til þessarar starfsemi, eða hins vegar, hvort ákveða eigi þegar í upphafi, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., að komið verði á þessum tryggingum með lagaboði, eins og er um aðrar slíkar tryggingar hér á okkar landi. Mér ar það alveg ljóst, að þeim tilgangi, sem hér á að ná, verður náttúrlega náð fyrr með því að slá því föstu í löggjöfinni, að þessi trygging sé ákveðin með l. Hins vegar er það svo, að það má segja og það er litið þannig á af sumum, og þar á meðal a.m.k. af sumum þeim mönnum, sem þessi ákvæði munu ná til, ef samþ. verða, að ekki væri óeðlilegt, að fyrsta sporið í þessu efni væri stigið með þeim hætti, að sett væru um þetta heimildarl. og þreifað með því fyrir sér um það, hvernig þeir menn líta á þetta, sem þessi ákvæði eiga að taka til Ég hef nú út frá sjónarmiði þeirra manna, sem þannig hugsa, flutt brtt. mína, sem er við brtt. frá hv. þm. V.- Húnv., sem miðar alveg í sömu átt, en þér finnst, að ekki grípi fullkomlega yfir þá hugsun eða þá framsetningu á frv., sem þarf að vera, ef það á að byggja upp löggjöf með slíkum hætti, að hún sé gefin út sem heimildarl. að þessu leyti. Ég hef þess vegna í brtt. minni leitazt við að setja þetta fyrirkomulag í eðlilegt samband við frv., eftir að búið væri að taka ákvörðun um þá breyt. að l. þessi yrðu afgreidd sem heimildarl., en ekki því slegið föstu, að þessir sjóðir skuli stofnaðir. Vænti ég, að þetta geti, hvað form snertir, alveg komið inn í, svo að vel fari, þó að e.t.v. geti svo verið, að athugun mín á þessu sé ekki svo gaumgæfileg, að aðrir geti ekki bent á formgalla á þessu. Þó hygg ég, að þeir séu ekki.
Ég hef sett hér inn í dálítið öryggisákvæði um það, að ekki þurfi að verða breyt. í þessu efni, þó að skipti um eigendur skipa eða útgerðarmenn, og heldur ekki, þó að breyta verði að meira eða minna leyti um skipshöfn, þ.e.a.s. að ef aðilar upphaflega gera samþykkt um að ganga inn í þennan sjóð, en aðrir menn koma í þeirra stað um eign eða útgerð skips, þá gildi sú samþykkt, sem upphaflega var gerð, gagnvart því veiðiskipi, þar til ný samþykkt um það gangi í gildi. Þetta ætti að stuðla að því, að tryggingin gæti haldið áfram, þrátt fyrir það að slíkar breytingar verði, sem mjög eðlilegt er, að geti átt sér stað og alltítt er, að eigi sér stað.
Sömuleiðis hef ég sett inn í þetta ákvæði um það, að ef ekki sé búið að selja afla í vertíðarlok, þegar á að leita eftir grundvelli undir það gjald, á að leggja í þessa sjóði, og ef til þess kemur, að það þurfi að meta aflann, eins og oft getur verið, t.d. eins og þegar afli er verkaður, þegar um saltfisk er að ræða, sem þarf svo að þurrka og verka til útflutnings, — og þá kemur ekki fram raunverulegt verðmæti aflans, fyrr en varan er komin í útflutningshæft ástand, — þá skulu fara fram mat á aflanum, þannig að stjórn Fiskifélags Íslands annist það mat, eins og nánar er tekið fram í brtt. minni. Að vísu má segja, að þetta geti heyrt undir ákvæði reglugerðar, sem gert er ráð fyrir, að sett verði samkv. frv. En ég hef nú lagt til, að þetta verði tekið inn í frv.
Ég lít með hinum mesta velvilja á tilgang þann, sem felst í þessu frv., að því leyti sem hann er sá að stuðla að því útgerðarfyrirkomulagi, að helzt öll veiðiskip, sem gerð eru út, væru gerð út með þeim hætti, að hásetar og aðrir menn á skipunum væru með þeim hætti þátttakendur í útgerðinni, að þeir fengju tryggingu sína á þann hátt fyrir starf sitt með hlutdeild í þeim árangri, sem útgerðin gefur.
Ég skal fullkomlega viðurkenna það, að því er ekki með öllu byggt út úr huga mínum, að einhver dráttur kunni að verða á því, að með heimildarl. færðist þetta í það horf, sem l. ætlast til. Ég skal viðurkenna það, en aftur á móti finnst mér ekki óeðlilegt, að sú fyrsta tilraun sem gerð er í þessu efni, sé gerð með heimildarlöggjöf. En ef það sýndi sig, að tómlæti ríkti meðal þeirra, sem hér eiga hlut að máli, og Alþ. teldi það mikils virði að grípa inn í með ákveðna löggjöf, þá er það hægt, hvenær sem vera skal eftir að heimildarl. hefðu sýnt sig þess eigi umkominn að koma þessum málum í það horf, sem æskilegt er.
Þá hafa nokkrar brtt. komið fram við þetta frv., og úr því að ég er farinn að ræða um frv. á annað borð, vil ég þá um leið minnast lítils háttar á það í þessum brtt., er einhverju máli skiptir.
Það er þá brtt. á þskj. 258, frá hv. 6. landsk. Hann leggur til, að því er mér skilst, að tekin verði gjöld af brúttóafla og í stað 1% af verðmæti aflans komi 3/4%. Ég býst við, að þetta yrði til þess að auka tekjur sjóðsins nokkuð og að um yrði að ræða nokkuð meiri fjárframlög samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér. Að vísu get ég ekki komið með neinar tölur í þessu sambandi. En mér lízt svo á, að ekki eigi að svo komnu máli að fara stærra á stað en samkv. því, er í frv. felst, þar er þessi grundvöllur lagður, sem skiptir mestu máli. Hitt skiptir í raun og veru minna máli, hvort gjöldin til sjóðsins eru reiknuð af brúttóafla eða að frádregnum sameiginlegum kostnaði, svo sem olíu, salti, þar sem því er til að dreifa, beitu o.fl. Sem sagt, ég held, að rétt sé að halda sér við ákvæðið eins og það er í frv. Það mun, það sem ég þekki bezt til, bezt henta, þó að annað geti kannske átt betur við þar, sem ég þekki ekki til.
Ein brtt. er og frá hv. þm. N.-Þ. Leggur hann m.a. til, að breyta skuli nafninu, sem frv. hefur á sjóðnum. Hér er aðeins um orð, en ekki efni að ræða, sem ætti ekki að þurfa að valda miklum ágreiningi. Satt að segja finnst mér það nafn, sem í frv. er á sjóðnum, eiga vel við, og að það grípi vel yfir hugmynd og tilhögun hans. En það má til sanns vegar færa að kalla þennan sjóð hlutatryggingarsjóð að því leyti, sem um er að ræða það lágan hlut, að jafna verður hann með úthlututi úr sjóðnum. Þar sem í brtt. ræðir um skipun stj., vil ég vekja athygli á því, þó að það sé út af fyrir sig ekki stórvægilegt atriði, að það má gæta þess að fara ekki of langt inn á það að setja í l. einstök atriði varðandi framkvæmdir og tilhögun sjóðsins, sem ætlazt er til, að sett verði í reglugerð sem sett verður um sjóðinn. Það er svo margt, sem fram kemur, er sjóðurinn tekur til starfa, sem ekki svo auðvelt að sjá við án undangenginnar reynslu. En hvort sem ofan á verður, finnst mér sjálfsagt, að slíkt ákvæði sem þetta komi í reglugerðina.
Þar sem þetta frv. gekk greiðlega í gegnum 1. og 2. Umr. og í n., bjóst ég við, að málið mundi afgreiðast greiðlega og verða að lögum. Þrátt fyrir þær brtt., sem nú hafa fram komið við frv., vænti ég þess, að þær verði ekki til að tefja um of, að frv. þetta geti orðið að l., svo að þetta mikilsverða mál útgerðarinnar nái sem fyrst fram að ganga.
Það er vitað mál, að frv. þetta mun leiða til nokkurra útgjalda fyrir ríkissjóð. Ekki er hægt að segja með vissu, hve mikla upphæð hér er um að ræða, og mun framlag ríkissjóðs verða breytilegt frá ári til árs. Nokkur útreikningur mun hafa átt sér stað til að komast að, hve mikla upphæð hér er um að ræða, en þessi útreikningur fór fram 1938 og miðaðist við það ár. Þá hefði framlag ríkissjóðs orðið um 140 þús. kr., en til þess að gera þessa upphæð sambærilega við það, sem nú mundi vera, mætti hún allt að því fjórfaldast.
Þá er og rétt að minnast á útgjöld þau, er þetta frv. hefur í för með sér fyrir ríkissjóð, ef að l. verður. Ég tel það mjög hæpið að setja slík ákvæði í l., sem ekki verður séð fyrir endan á, hve háar upphæðir ríkissjóður þarf að greiða. Ég á ekki einungis við þær upphæðir, sem ríkissjóður á að greiða með frv. þessu, heldur og yfirleitt miklu fremur við þá stefnu, sem lýsir sér í þessu, að skylda ríkissjóð til að greiða upphæðir, sem enginn getur vitað um, hve háar verða, þegar til kemur. Þetta vildi ég sagt hafa um þetta atriði almennt.