28.01.1943
Neðri deild: 44. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í C-deild Alþingistíðinda. (2679)
45. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. — Mál þetta var tekið af dagskrá samkv. ósk sjútvn. með það fyrir augum, að henni gæfist tóm til þess að athuga brtt. þær, sem konlið hafa fram við frv. þetta. N. hefur nú haldið fund, þar sem þessar brtt. voru athugaðar, og hefur hún tekið nokkur atriði úr þeim brtt., sem hún vill leggja til, að samþ. verði, og he: ég þær brtt. n. skriflegar og mun leggja þær fram að loknu máli mínu.
En afstaða n. til brtt. þeirrar, er einna stærsta breyt. fela í sér á frv. og hv. þm. V.- Húnv. og hv. þm. Borgf. standa að, er sú, að n. sá sér ekki fært að fallast á þá brtt., sem fer í þá átt að gera tryggingarnar frjálsar í stað þess, eins og frv. fer fram á, að tryggingarnar séu skyldugar, — að enginn hlutaðeigandi geti skorizt úr leik. Ástæðan fyrir þessu er sú, að við teljum það ekki heppilegt og heillavænlegt þessari tryggingarstarfsemi, að ýmsir geti forsómað og látið sig engu skipta þessa starfsemi, heldur sé nauðsynlegt að fá alla þá, sem lögin eiga að ná til, þátttakendur í þessari sjóðmyndun.
Ég hef haft gott tækifæri til þess frá árinu 1940 að kynna mér þetta mál og ræða um það við málsmetandi menn, ef hér eiga hlut að máli, og hef ég ekki hitt neinn mann, sem ekki hefur komizt að raun um það eftir nánari íhugun, að ófært væri að hafa tryggingar þessar frjálsar.
Sumir útgerðarmenn mundu, ef tryggingarnar yrðu gerðar frjálsar, ekki taka þátt í þeim af ásælni í stundargróðann; þeir mundu hugsa mest um að klóra sem mest upp á augnablikinu. Ýmsir sjómenn mundu og ekkert kæra sig um að gerast þátttakendur í þessum tryggingarsjóði. Þeir mundu sumir líta svo á sem þeir væru ekki við þetta starf sitt, sjómennskuna, nema stuttan tíma, og væri því óvit að vera að leggja eitthvað af mörkum til tryggingar atvinnuveginum í framtíð. — Ef tryggingin yrði gerð frjáls, yrði því afleiðingin sú, að sumir bátar yrðu tryggðir skv. hugmyndinni um jöfnunarsjóðinn, en aðrir bátar ekki, og yrði það alveg í óvissu, hvort þessi starfsemi mundi þá koma að nokkru gagni eða ekki.
Það hefur verið reynt bæði í kaupstöðum og þorpum að hafa tryggingar frjálsar, en hefur ekki, gefizt vel, Það hefur verið reynt með sjúkratryggingar og vátryggingar báta o.fl. tryggingar, en þær hafa ekki orðið almennar og ekki komið að tilætluðu gagni fyrr en þær voru skyldutryggingar. Þó að mönnum sé kannske óljúft að setja skyldur á herðar fólksins, þá á sú skoðun ekki að standa í vegi fyrir, þegar um er að ræða skyldur, sem almenningi eru í vil, og þegar jafnt gengur yfir alla. Þegar skyldutryggingarnar eru til hagsbóta, eru þær ekki þungbærar, eins og hver heilvitamaður hlýtur að sjá.
Mér er nokkuð kunnugt um vátryggingu fiskiskipa upp undir 100 smálestir og veit, hversu torvelt er að eiga við tryggingu þeirra erlendis, og þá sérstaklega tréskipa. Tryggingin er þar um 10–15%, en af því að ríkið stendur að baki tryggingunum, hefur verið hægt að fá þær lækkaðar um helming, eða niður í 5–8%.
Ég ætla ekki að dvelja lengur við þetta atriði, en ætla að leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa þær brtt. upp, er n. hefur orðið ásátt um að leggja til, að samþ. yrðu.
„1 Við 1. gr.
a. í stað „1%“ komi: 0,7%.
b. Orðin „eftir að sameiginlegur kostnaður hefur verið dreginn frá“ falli niður.
2. Við 3. gr. Í stað „1%“ komi: 0,7%“. Hefur n. þannig lagt til, að brtt. hv. 6. landsk., á þskj. 258, verði samþ. Hann gat þess, að á Austurlandi væri venjan sú, að ekki væri dregið frá aflanum, áður en skipt væri í hluti, og gat n. fallizt á að hafa gjaldið lítið eitt lægra af aflanum frádráttarlausum. Þar með mun hv. 6. landsk. taka aftur brtt. sina á þskj. 258.
Þá hefur n. séð sér fært að mæla með, að samþ. verði brtt. hv. þm. N.--Þ., á þskj. 246, að því leyti, sem fram kemur í 3. brtt. n., er orðast svo:
„Við 5. gr. Greinin orðist svo:
Stjórn sjóðsins skipa þrír menn, kosnir hlutbundinni kosningu í sameinuðu Alþ. til tveggja ára í senn. Stjórnin velur sér formann. Tryggingarstofnun ríkisins annast daglegar framkvæmdir og reikningshald sjóðsins fyrir þóknun, er ráðherra ákveður. Ráðherra ákveður stjórninni þóknun fyrir störf hennar“.
Sjútvn. taldi enga ástæðu vera til þess að setja sig upp á móti því, að stjórnin væri skipuð til tveggja ára. N. féllst og á það, að form. yrði valinn af stjórn sjóðsins, en ég vil þó taka það fram, að ég persónulega var því mótfallinn, að það yrði samþ. í n., þó að ég hins vegar vildi ekki gera það að neinu ágreiningsefni. Ég lít svo á, að þar sem stjórn sjóðsins þarf að sækja svo mikið í greipar ríkissjóðs, sem er framlag ríkisins til sjóðsins, sé það ekki nema sanngjarnt, að ráðh. velji form. nefndarinnar.
Þá vill n. einnig leggja til, að sú breyt. verði samþ. á frv. að láta ráðh. ákveða þóknun fyrir tryggingarstofnun ríkisins með það fyrir augum, að ágreiningur gæti orðið um það hjá stjórnum sjóðanna, hver þessi þóknun skuli vera.
Þá er 4. brtt. sjútvn., orðrétt brtt. hv. þm. V.-Húnv., á þskj. 242, um, að ákvæði 7. gr. l. nr. 45 12. febr. 1940 um framlög frá bæjar og hreppsfélögum í tryggingarsjóði hlutarútgerðarfélaga falli niður. — Mun því hv. þm. V.-Húnv. taka til baka þá till. sína.
Þá eru eftir brtt. þeirra hv. þm. Borgf. og hv. þm. V.-Húnv., sem n. sá sér ekki fært að leggja til, að samþ. yrðu,— að tryggingarnar yrðu gerðar frjálsar. En eigi að síður geri ég ráð fyrir, að þeir muni ekki draga þær til baka, en láta þær eftir sem áður koma til atkv. hér í d.
Sjútvn. tók enga afstöðu til brtt. hv. þm. N.-Þ. um nafnið á frv., en ég fyrir mitt leyti get sagt, að ég felli mig vel við það nafn, sem í frv. er á sjóðnum, og vil mæla með því, að það verði samþ.
Loks vil ég taka það fram, að hv. þm. N.--Þ. tók ekki afstöðu til þess í n., hvort tryggingarnar skyldu vera frjálsar eða ekki, og hefur hann að sjálfsögðu óbundnar hendur í því að greiða atkv. með eða móti skyldutryggingum.