12.03.1943
Efri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í C-deild Alþingistíðinda. (2690)

45. mál, jöfnunarsjóður aflahluta

Frsm. (Gísli Jónsson):

Það er nokkuð stórt mál, sem hér er um að ræða, og sé ég, að ekki er þó mannmargt hér í d. Það þarf að athuga þetta mál ýtarlega, áður en gengið er til atkvæða. Sjútvn. hefur rætt það mikið og væntir þess, að það nái samþykki í þessari hv. d.. Það hefur legið fyrir tveimur eða þremur undanförnum þingum og komizt þetta lengst, frá Nd. til Ed. Sjútvn. gat ekki orðið sammála, heldur áleit meiri hl., að málið þyrfti meiri undirbúning. Það er einróma álit hans, að það þurfi meiri undirbúning og ekki hægt að afgreiða það eins og það kom frá Nd., enda ekki rétt að samþykkja það þannig.

Það þarf að afla upplýsinga um margt viðvíkjandi meðalaflahlut landsmanna á a.m.k. undaförnum fimm árum. Þetta hefur ekki verið gert.

Eins og kemur fram á þskj. 336, eru þetta aðeins heimildarlög fyrir stærstu útgerðarfélögin til að draga sig út úr. Við það, að stærri útgerðarfélögin gerðu það, mundi smáútgerðin bíða mikinn skaða. Þetta eru í raun og veru þvingunarlög. Á það vildi n. ekki fallast og taldi betra, að l. væru aðeins heimildarlög, og jafnframt taldi hún það ekki sitt hlutverk að gera þá breyt. á lögunum. Hún áleit, að meiri upplýsingar þyrfti til þess að standa lengur en frá ári til árs. Kostnaðarhliðin er óþekkt, en n. telur mikilsvert, að hún sé athuguð, þar sem um er að ræða mál, sem bakar ríkissjóði mikil útgjöld og munu vara um óákveðinn tíma. Ég hef persónulega verið að kynna mér málið frá kostnaðarhliðinni og vildi mega benda á, hver hann gæti orðið í einu eða tveimur tilfellum. Þetta er til þess að sýna, hversu lítið hefur verið hugsað um þessa hlið málsins. Ég vil taka t.d. skip, sem aflað hefur á undanförnum 5 árum 20 þús. mál síldar að meðaltali. Hef ég gert ráð fyrir, að hvert mál kosti 10 kr., en það mun of lágt reiknað. Meðalaflahlutur yrði þá 200 þús. kr. á ári. Nú má gera ráð fyrir því, að skipstjóraskipti gætu orðið og nýi skipstjórinn væri skussi, aflaði aðeins 10000 mál á ári og verðið yrði 5 kr. á mál. Á sama tíma hefði þetta skip greitt 14 þús. kr. í iðgjöld, þ.e. 7 þús. beinlínis og 7 þús. ríkisframlag. Ef þessu er þannig haldið áfram næstu 5 ár og meðalhlutur verður sami og næst liðin 5 ár, greiðir það 3500 kr. í iðgjöld, og þá verða þau samtals 17500 kr., en á sama tíma fengi það út úr honum 228244 kr. Þetta dæmi sýnir bert, hve afar lítið hefur verið hugsað um þá hlið málsins og að útilokað er að reka þessa starfsemi á annan hátt en hækka stórkostlega iðgjöld til sjóðsins. Enda væri ákaflega einkennilegt, ef hægt væri að tryggja meðalaflahlut manna á landi með öðrum eins sveiflum og hér eru með aðeins 0,7% framlagi frá atvinnurekanda og sama framlagi frá ríkinu. Það er svo mikil fjarstæða, að ég er alveg undrandi, að menn skuli ekki hafa séð, í hverjar ógöngur er stefnt þegar á fyrstu vikum eða mánuðum sjóðsins.

Ég tek hér annað dæmi. Vélbátur getur nú, eða t.d. á undanförnum 5 árum, haft 60 þús. kr. meðal hlut, en farið svo niður í 30 þús. kr. á næstu 5 árum. Þá er útkoman sú, að hann yrði þá búinn að greiða í sjóðinn 6500 kr., en taka út 25945 kr. Hver bátur, sem þannig færi um, hlyti að draga margfalt meira úr sjóðnum en hann legði inn. Þá er annar megingalli. Eins og ég gat um, mun meðalhlutur á síldveiðum hafa orðið um 4 þús. kr., og kann það að vera miklu betri greiðsla en greitt er fyrir aðra vinnu jafnlangan tíma. Ef ríkissjóður ætti að fara að styrkja menn til að halda a.m.k. 70% af þessum aflahlut. meðan aðrir hafa kannske helmingi lægri tekjur af sambærilegri vinnu, þætti það ekki sanngjarnt og stefndi í ófæru. Þetta eru ekki andmæli gegn málinu sjálfu, heldur gagnrýni á undirbúningi þess, og því kerfi, sem það er bundið í. Það þarf að finna leið til að tryggja þessum mönnum sem öruggasta atvinnu og afkomu. ekki með því að miða aðeins við meðalhluti ákveðinna ára, heldur lágmarkslaun. Mér varð ekki kunnugt um það fyrr en í gær, að í Bolungavík hefur verið stofnaður vísir að slíkum jöfnunarsjóði og byggður á þessum grundvelli að tryggja lágmarkstekjur í vondum árum.

Með tilliti til þess, að Alþ. hefur lagt fyrir ríkisstj. að skipa mþn. í sjávarútvegsmálunum, sem brýnust eru, og n. hlýtur að taka til íhugunar launakjör þeirra, sem þann atvinnuveg stunda, taldi sjútvn. réttast, að frv. yrði vísað frá með rökst. dagskrá í því trausti, að ríkisstj. láti mþn.. afla allra nauðsynlegra upplýsinga um málið og undirbúa frv. um það fyrir mesta þing eða næstu þing, svo fljótt sem auðið er.

Ég vil loks taka fram, að Fiskifélag Íslands hefur haft málið til meðferðar á tveim þingum. Í annað skiptið var málið drepið af fulltrúum Suðurlands og Austfjarða, en á hinu þinginu var það samþ. samhljóða, án þess að allir fulltrúar fylgdu því. Form. Fiskifélagsins taldi málið þurfa miklu meiri undirbúning, einkum skýrslusöfnun um aflahluti í sérhverri verstöð, og kvaðst fús að taka það verk að sér, en af einhverjum ástæðum hafði honum ekki verið falið það. Ég hef heyrt á fylgismönnum frv., að þeir legðu kapp á að fá frv. fram til þess að ná í sjóðinn tekjum af háum aflahlutum. Það er misskilningur, ef þeir bera mest hag sjóðsins fyrir brjósti, því að stofnun hans nú mundi líklega steypa hönum skyndilega, eins og ég hef sýnt, nema frv. væri gerbreytt.

Ég legg til, að dagskráin verði samþ., og vænti þess, að ríkisstj. láti gera gangskör að málinu.