19.12.1942
Efri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2696)
66. mál, skólasetur á Reykhólum
Eiríkur Einarsson:
Ég kvaddi mér ekki hljóðs til að ræða um sjálft frv., heldur um það, hvaða n. skuli fá það til meðferðar. Lagt hefur verið til, að það fari til menntmn., en ég álít það ekki rétt, miklu nær, að það eigi heima í fjhn. eða e.t.v. í allshn. Frv. hlýtur að binda ríkinu allmikla bagga, ef að l. verður, jafnframt því, sem það ákveður, að nefnd skuli sett til að ráða um það ráðum sínum, til hvers menntasetrið skuli notað. Ljóst er, að menningar- og framfarahugur lýsir sér í frv. En á þessu stigi er málið ekki komið á þann rekspöl, að þar sé neitt verkefni fyrir menntmn. þessarar deildar. Ég geri það að till. minni, að frv. fari til fjhn.