19.12.1942
Efri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (2701)
66. mál, skólasetur á Reykhólum
Flm. (Gísli Jónsson):
Ég skal vera stuttorður. Það virðist ekki sem menn hafi lesið grg. frv. Þar er gert ráð fyrir, að þetta verði nokkurs konar búnaðarskóli, og eftir því, sem fyrrv. landbrh. hefur upplýst, þá heyra búnaðar- og húsmæðrafræðsla undir landbrh., en tilheyra ekki öðrum skólamálum. Ég hef því ekkert á móti því, að málið fari í landbn.
Ég sé svo ekki ástæðu til að svara hv. þm. Str. meiru. Mér skilst, hvort eð er, á honum, að hann muni verða með í að fylgja málinu fram til veruleikans.