22.01.1943
Efri deild: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í C-deild Alþingistíðinda. (2712)
118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna
Flm. (Gísli Jónsson):
Ég vil viðurkenna hér, eins og ég tók fram, að það er afar miklum erfiðleikum bundið að finna þennan meðalveg. En ég held, að hræðsla hv. 3. landsk. við þetta sé ekki á fullum rökum byggð. Það sést m.a. á frv., í 5. gr., sem mér þætti vænt um, að 3. landsk. athugaði, þegar það ástand ríkir, að ágreiningur er á milli vinnuveitanda og vinnuþiggjenda, er sjóðstj. heimilt að rannsaka hag fyrirtækisins. Það fyrirbyggir náttúrlega alveg, að atvinnurek andi bjóði lægri laun en vera ber og eigi á hættu að verða kannske innan nokkurra daga uppvís að því, að hann er að nauðsynjalausu að seilast í sjóðinn eða gera tilraun til að lækka launin. Ég skal ekki segja, að ekki sé hægt að fyrirbyggja þetta betur, og ég er fús til samvinnu um allt, sem er til bóta. Við erum sammála um, að hér sé um tímabært mál að ræða, og vildi ég því taka samvinnu um allar hugsanlegar bendingar, sem gætu orðið til bóta í málinu.
Hv. 3. landsk. sagði, að það væri á einskis manns færi að finna út þurftarlaun. Þau færu eftir því, hvort maðurinn er einhleypur eða fjölskyldumaður, býr í sveit eða á dýru hóteli. Þau fara eftir þessu: Hvað þarf fjölskylda, sem hefur ákveðinn barnafjölda fram að færa, undir þeim lífskjörum, sem eru í landinu? Og við getum orðið sammála um, að áður en þessi verðbólga hljóp í allt, þá voru komin alveg föst árslaun hjá verkamönnum og sjómönnum í þessu landi. Og ég held, að það sé tryggður ákaflega mikið réttur þessara manna með því, að hagstofan reikni þetta út, þegar ekki verður samkomulag hjá sjóðsstj. Hann talaði líka um það, að í landinu yrði misjafnt kaupgjald hjá einkafyrirtækjum. Hann skilur frv. öðruvísi en ég. Mér dettur ekki í hug að halda, að iðnfyrirtæki, sem stendur sig illa, geti gert verkbann og tilraun til að lækka kaup, á meðan samningar standa yfir. Það gæti ekkert einstakt togarafélag leyft sér að bjóða hásetum sínum lægri laun, ef samkomulag er milli vinnuveitendafélags annars vegar og sjómannafélags eða annars stéttarfélags hins vegar um kaupið. Hitt getur verið, að eitt félag geti haldið lengur áfram að vinna en annað, undir þeim kringumstæðum, að búið sé að segja samningum upp og ekki tekst samkomulag, ef félagið er fjársterkara og á meira í sjóði en önnur. Það teldi ég ekki óhamingju út af fyrir sig. Þetta, um að misnota aðstöðu sina gagnvart iðgjaldinu, tel ég ekki á rökum reist. Ef hv. 3. landsk. vill athuga frv. nánar, mun hann sjá, að þar er kveðið svo á í 7. gr.: „Þegar atvinnurekandi, sem á innieign í jöfnunarsjóði, hættir rekstri að fullu, fellur upphæðin öll í sameiginlegan jöfnunarsjóð vinnulauna.“ Þessi iðgjöld eru því engan vegin eign fyrirtækjanna, og vil ég benda hv. 3. landsk. á það. Féð á að nota til þess að mæta sams konar erfiðleikum og upphaflega var ákveðið, og hér er engan veginn gerð tilraun að skapa atvinnurekendum meiri rétt en vinnuþiggjendum, og ég held, að þar taki atvinnurekendur á sig fullt eins mikla byrði og áhyggjur og atvinnuþiggjendur, enda er það alveg sjálfsagt. Hitt er ekki nema eðlilegt, að ríkissjóður þurfi einnig að taka á sig einhverja byrði, og hún er þessi, að það fé, sem lagt er í sjóðinn, renni ekki beint sem eyðslufé í ríkissjóð, en ríkissjóður hefur hins vegar tekjur af fyrirtækjunum, inn í sjálfan ríkissjóðinn, ef hægt er að reka þau, og fær þar meira uppborið heldur en ef hann héldi þessum hluta, sem er lagt í jöfnunarsjóðinn. Og ég held, að ríkissjóður og allt landið græddu mest á því að fyrirbyggja með þessum sjóðum, að vinnustöðvun hljótist af kaupdeilum.
Ég hygg því, að ef hv. 3. landsk. gerir sér far um, sem ég efast ekki um, að brjóta öll ákvæði þessa frv. til mergjar, og gerir svo sínar till. um það, sem betur má fara, sem ég og einnig hv. n. mun taka mjög vel í að athuga, þá gætum við mætzt á einhverri þeirri leið, sem yrði til þess að fyrirbyggja það böl, sem af því leiðir, að atvinnurekendur og atvinnuþiggjendur stríða um þessi mál.