22.03.1943
Efri deild: 78. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (2724)
118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Mál þetta hefur verið á döfinni síðan í þingbyrjun. Ég hef verið að reyna að rannsaka ástæðurnar til þess, að málið var ekki afgreitt fyrr. N, hefur átölulaust leyft Alþýðusambandinu að salta málið í 4–5 vikur. Sú aðferð n. er ófær, að leyfa aðila utan þ. að halda málinu hjá sér óafgreiddu af eintómri andúð. Þeirri stefnu verður að breyta hér á Alþ.
Ég og hv. 3. landsk. þm. ræddum þetta við 1. umr. Hann viðurkenndi, að um athugunarvert mál væri að ræða, en taldi það þurfa mikinn undirbúning og ýmissa breyt. við. Allshn. komst að sömu niðurstöðu, en hennar starf náði ekki lengra en til þess að vísa málinu frá sér án þess að reyna að laga þá agnúa, sem hún fann á frv.
Þegar það er athugað, að bréf Alþýðusambandsins er dags. 4. marz og er svar við bréfi n. 28. janúar, sést, að allmikinn tíma hefur stofnunin þurft til að gera ekkert í málinu. Það segist að sjálfsögðu vera á móti frv., af því að það skerði allverulega verkfallsréttinn. Ég vil spyrja þá þm., sem telja sig fulltrúa verkamanna, hvort það er þeirra skoðun, að það verði til lengdar hægt að halda því fram, að verkfallsrétturinn sé eini rétturinn. Þjóðin beygir sig ekki lengi undir það, að verkfallsréttur og verkbannsréttur gildi fram fyrir réttlæti og rétt verkamanna. Allir viðurkenna, hvað það getur verið háskalegt, að ekki sé hægt að fyrirbyggja verkföll, og þess vegna átti Alþýðusambandið að benda á galla frv. og reyna að bæta úr þeim. Hvorki verkfallsréttur, sem byggður er á mergð hinna fátæku, né verkbannsréttur, sem byggður er á fjármagni hinna ríku, má gilda. Þetta frv. er spor í áttina til að breyta því.
Ég felli mig að sumu leyti vel við afgreiðslu málsins, úr því sem komið er, þar sem ríkisstj. er falið að láta rannsaka málið og undirbúa nánar. Þess er ekki að vænta, að svona viðkvæmt mál nái samþykki á fyrsta þingi, þó að vænta hefði mátt, að þeir, sem áttu um það að fjalla, hefðu sýnt því meiri skilning. Ég vona, að ríkisstj. setji sérstaka n. til að undirbúa það, svo að það geti komið fyrir næsta þing.
Ég hef kynnt mér rökfærslu Vinnuveitendafél., sem kemur fram í aths. við hverja gr. frv., en það merkilega er, að Vinnuveitendafélagið virðist vera hlynnt málinu í heild, en vilja láta lagfæra frv. Það gefur mér vonir um, að vinnuveitendafélagið, sem lagðir eru á þyngstir baggarnir með þessu frv., muni vilja stuðla að framgangi þess. Menn úr verkalýðsstétt hafa látið í ljós, að það væri hin mesta blessun, ef slíkt frv. yrði að l., en forsprakkarnir, sem lifa á því að hafa sem mestan ójöfnuð á milli þessara manna, munu í lengstu lög sporna við því, að slík réttlætislöggjöf verði sett á Íslandi.