31.03.1943
Efri deild: 85. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (2743)
86. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. — Það, sem ég vil nú aðallega minnast á, eru ummæli hv. 7. landsk. í gær. Hann gat þess, að Halldór Kiljan Laxness veri að undirbúa Njálu og fleiri Íslendingasögur á sama hátt og Laxdælu og Hrafnkötlu. Ég segi fyrir mig, að mér finnst sjálfsagt að stemma hér á að ósi, því að eins og útgáfa af Laxdælu hefur orðið til leiðinda og vansa fyrir hérað Dalamanna,. eins má vænta, að þessi fyrirhugaða útgáfa Njálu verði fyrir þá, sem byggja hið fornfræga hérað þeirrar sögu. Þegar Laxdæla H. K. L. var gefin út, var sagt, að hún væri bara með nútímastafsetningu, en að öðru leyti fullkomin, óstytt og óbreytt, en þegar til kemur, þá er þetta hálfgert fals, eða algert fals, því að eftir því, sem fræðimenn segja, þá er miklu sleppt úr henni, á einum stað 5 köflum, sums staðar breytt efni málsins og setningaskipun. Svo telja þeir upp, hverju hefur verið breytt og telja allar þessar breytingar til skemmda á máli, stil og efni sögunnar. Ég segi fyrir mig, að þótt máltækið segi, að sætt sé sameiginlegt skipbrot, þá óska ég ekki öðrum héruðum þess að fá misþyrmingu á sínum sögum eins og við Dalamenn höfum orðið fyrir. Ég hygg, að það sé rétt og nauðsynlegt, að Alþ. gangi betur frá þessum l. og geri mönnum enn erfiðara fyrir um heimildir til að fara svona með Íslendingasögurnar. Þess vegna mun ég samþ. þessa dagskrá í trausti þess, að hert verði l., sem banna handahófsútgáfu fornrita vorra. Ég held, að nú þegar hafi verið haldið nógu langt fram á þessari braut, og það lítur út fyrir, að það eigi að leggja allar Íslendingasögur undir og misþyrma þeim, eftir því sem þeir segja hér, þeir fróðu menn. Og satt að segja höfum við látið svo mikið um sögur okkar, að við látum okkur ekki á sama standa, hvernig ferið er með þær, og vil ég því samþykkja þessa dagskrá, ef það yrði til þess, að hert yrði á lögunum.