02.04.1943
Efri deild: 87. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (2751)
86. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Páll Hermannsson:
Það hafa orðið langar umr. um þetta mál, og er það að vísu ekkert undarlegt. Þegar um er að ræða fornbókmenntir okkar, þá er það ekkert hégómamál. Ýmsir halda fram, að það sé þeim að kenna eða þakka, að nokkur Íslendingur er til enn í dag.
Ég kvaddi mér aðallega hljóðs til að mótmæla tvennu af því, sem hv. flm. þessa frv. hefur sagt hér í d. fyrir tveimur eða þremur dögum. Hann segir í fyrsta lagi, að þessi lagasetning, sem hann vill nema úr gildi, hafi á sínum tíma verið sett hér á þ. sem hefndarráðstöfun gagnvart Halldóri Kiljan Laxness. Þessu mótmæli ég fyrir mitt leyti algerlega. Ég þykist alveg viss um, að margir af þeim, sem stóðu að þessari lagasetningu, kunni eins vel að meta það, sem Halldór Kiljan Laxness hefur sagt vel eins og aðrir menn og hafi enga löngun til að níðast neitt á honum.
Í öðru lagi sagði þessi sami hv. þm., að það , kæmi þessu máli ekkert víð, hvort gefnar væru út eða ekki óheppilegar, útgáfur af fornritunum. Þessu vil ég líka alveg mótmæla. Ég álít, að það sé þetta, sem öllu máli skiptir, að fornritin, sem eru kannske eini dýrgripurinn, sem þjóðin á, séu aldrei gefin út nema í vönduðum útgáfum. Mér finnst, að það séu aðeins tvenns konar sjónarmið, sem þurfa að vera fyrir hendi, þegar þessi rit eru gefin út, og ekkert annað. Í fyrsta lagi, að útgáfan stuðli að því að halda í heiðri eins og vera ber þessum gullaldarbókmenntum okkar, stuðli að því, að á þær falli enginn blettur að óþörfu, og í öðru lagi, að Íslendingar geti framvegis sem hingað til sótt þangað hið andlega heilnæmi, sem þjóðin hefur áður notið sér til lífsviðurhalds.
Ég ætla mér ekki að fara neitt út í það frá lögfræðilegu sjónarmiði, hver sé raunverulegur eigandi þessara rita. Mér skilst, að þjóðin öll eigi þessi verk, eigi að vernda þau og beri skylda til þess.
Um þessa útgáfu, sem hér er um að ræða, skal ég ekki vera langorður. Ég álít, að í þessari útgáfu, sem kennd er við Halldór Kiljan Laxness, séu spjöll á sögunni, og má þá nærri geta, hvernig fara mundi, ef óbrotnir fúskarar færu eftirlitslaust að fást við þessi rit, því, að það vita allir, að Halldór Kiljan Laxness er enginn meðalmaður í þessu efni. Sumt tel ég til svo mikilla skemmda, að ég tel undur, að það skuli hafa viljað til hjá honum, því að ég ætla honum ekki, að hann sé viljandi að spilla þessum verkum. Ég hygg, að þessi útgáfa hafi verið gefin út í gróðaskyni, sem aldrei má vera, og Halldór hafi kastað höndunum til hennar. Þessu til sönnunar vil ég nefna örlítið dæmi úr Hrafnkötlu, en skal ekki þreyta hv. d. með löngum lestri, en aðeins nefna lítið dæmi til þess að sýna, hver munur er á, hversu með er farið.
Hrafnkelssaga segir frá Hrafnkeli freysgoða, sem er ungur atorkumaður, óvæginn, óbilgjarn og ónærgætinn við aðra. Loks rekur að því, að straumhvörf verða í lífi hans. Hann fellur á sjálfs sín bragði óþyrmilega. Hann er gerður sekur, sætir meiðslum og hrakningum og er rekinn burt af staðfestu sinni félaus og valdalaus. Á einum stað í sögunni kemur að því, að farið er að undirbúa þessi straumamót. Það er gert með því, að Hrafnkell ræður til sín mann. Hann verður honum að bana, að vísu sér þvert um geð, og á því fellur hann. Örlögin snúast gegn honum. Mér virðist höfundur sögunnar vanda sig við undirbúning þessara tímamóta. Ég skal nú lýsa, hvernig þetta er hjá Halldóri.
Ég byrja þá þar, sem Þorbjörn á Hóli, sem er fátækur ómagamaður, er að tala við Einar, elzta son sinn, og segir honum, að sér sé ekki lengur fært að hafa hann heima, þar sem systkin hans séu nú komin til vinnu, og verði hann því að leita sér annarrar vistar. Síðan stendur þannig í Hrafnkötluútgáfu Halldórs neðst á bls. 11 og efst á bls. 12, með leyfi hæstv. forseta:
„Einar svarar: Of seint hefur þú sagt mér til þessa, því að nú hafa allir ráðið sér vistir, þær sem beztar eru, en mér þykir þó illt að hafa úrvöl ein.
Tók Einar nú hest sinn og reið á Aðalból. Hrafnkell sat í stofu. Hann heilsar honum vel og glaðlega. Einar leitar vistar við Hrafnkel. Hann svarar:
Hví leitar þú þessa svo seint, því að ég mundi fyrr við þér tekið hafa.“
Halldór segist fara eftir útgáfu Konráðs Gíslasonar frá 1847.
Sigurður Kristjánsson segist einnig fara eftir útgáfu Konráðs Gíslasonar frá 1847. Hjá honum er þessi kafli neðst á bls. 4 og efst á bls. 5, og hljóðar hann þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Einarr svarar: „Of síð hefir þú sagt mér til þessa, því at nú hafa allir ráðit sér vistir, þær sem beztar eru, enn mér þykir þó ilt at hafa af órvöl ein.“ Tók Einar nú hest sinn ok reið á Aðalból; Hrafnkell sat í stofu; hann heilsar honum vel ok glaðlega. Einarr leitar til vistar við Hrafnkel. Hann svarar: „Hví leitar þú þessa svá síð? Því at ek mynda við þér fyrstum tekit hafa. Enn nú hefi ek ráðit öllum hjónum mínum, nema til þeirrar einnar iðju, er þú mant eigi hafa vilja.“ Hverju munar hér? Hjá Halldóri er Hrafnkell látinn segja: Ég hefði tekið við þér, ef ég hefði haft eitthvað við þig að gera. — Hjá Sigurði segir hann: Ég hefði valið þig fremur öllum öðrum. — Hvernig stendur á, að hér kemur fram alveg tvennt? Höfundur Hrafnkelssögu er að búa menn undir þessi straumamót, þessa breytingu á örlögum Hrafnkels. Hann finnur, að hér er á ferðinni úrvalsmaður, sem snýr örlögum hans við. Þetta hverfur burt hjá Halldóri. Hvers vegna? Það er af því, að þetta er venjulegur sóðaskapur. Hann hugsar ekkert út í, hvað hann er að fara með.
Fyrir svona meðferð vil ég vernda fornritin. Hv. flm. segir, að nú séu svo miklir afturhaldsmenn á Alþ., að ekki sé hægt að búast við, að hægt sé að fá réttingu góðra mála, en það geti komið síðar. Ég spái engu um það. Mig grunar, að þegar á þ. sitja menn, sem ekki kæra sig um að vernda þessar gersemar þjóðarinnar, sem fornbókmenntirnar eru, ef það verður einhvern tíma, þá verði þess ekki langt að bíða, að lítið verði eftir af þeim.