02.04.1943
Efri deild: 87. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2755)
86. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Frsm. 1. minni hl. (Kristinn Andrésson):
Það er mjög ánægjulegt, hvað mikil þátttaka er í þessum umr. Þetta er þriðji dagurinn, sem þessar umr. standa yfir, og 1. umr. stóð í tvo daga.
Það er engin leið fyrir mig að svara nem nokkru af því, sem fram hefur komið við umr., vegna þess að þær hafa farið mjög á við og dreif, og það er þannig með hv. þm. S.-Þ., að það vita allir hv. þm. í þessari d., að það er ekki hægt að taka hann eins og annan heilbrigðan mann, svo að það er gagnslaust að eltast við að svara honum, það er ekki hægt að líta á hann öðruvísi en sem sjúkling, og verður að taka hann þannig. Það er ekkert launungarmál, að þessi hv. þm. fylgdi því fyrr á árum, meðan hann var heilbrigðari en nú, að það ætti að vera nútímastafsetning á fornritunum, og það er engin tilviljun, að kennslubækur hans og allar tilvitnanir í fornritin eru með nútímastafsetningu.
Það er síður en svo, að það sé Halldór Kiljan Laxness, sem fyrstur kemur með það, að nauðsynlegt sé að glæða áhuga ungu kynslóðarinnar fyrir fornritunum og gefa þau út með nútímastafsetningu. Einn af þeim, sem fyrstur kvaddi sér hljóðs um það, var dr. Björn Bjarnarson frá Viðfirði, sá ágæti fræðimaður. Hann hefur skrifað hvasst um, hvílík fásinna væri að halda áfram þessum forna rithætti, þegar fornsögurnar væru gefnar út. Um leið og Laxdæla kom út, ritaði Arnór Sigurjónsson ýtarlega grein, þar sem hann gerði grein fyrir því, að hann ætti frumkvæðið að þessari útgáfu og hefði skotið þessari hugmynd af útgefandanum, svo að það er óþarfi að vera að binda þetta eingöngu við þessa útgáfu. Það eru margir ágætir fræðimenn og íslenzkumenn, sem hafa fordæmt að halda áfram að gefa út Íslendingasögurnar með þessari gömlu stafsetningu, jafnhliða því sem þessar sögur, þegar þær eru lesnar upp, eru auðvitað lesnar með nútímaframburði. Það les enginn ek, ok eða at, heldur með þeim framburði, sem nú tíðkast, og annað kemur ekki heldur til mála. Það er svo mikil fjarstæða að deila um svona atriði, að slíkt mundi ekki þekkjast nokkurs staðar í heiminum, að stafsetningaratriði séu margra daga deiluefni á þ. Að sumu leyti sýnir þetta þó hinn mikla áhuga, sem íslendingar hafa fyrir bókmenntum.
Hv. 1. þm. N.-M. mótmælti því, að þegar þessi l. voru sett, hafi það verið gert sem hefndarráðstöfun gegn Halldóri Kiljan Laxness. Ég skal ekki rengja hann, að hann hafi greitt atkv. með þessari ómerkilegu lagasetningu án þess að hann vildi þar með hefna sín á Halldóri Laxness, en það vita allir, hver var upphafsmaðurinn að þessu og hver fékk þetta kast fyrir tveimur árum síðan. Það var hv. þm. S.-Þ., og það hefur sannarlega ekkert vakað fyrir honum annað en að koma fram hefndarráðstöfunum gagnvart útgefandanum. Það er ekki nema framhald af fyrri aðgerðum hans. Hann greip þetta tækifæri, þegar farið var að hefja æsingar í blöðunum út af þessari útgáfu, áður en hún var komin fram. Ég hygg, að hv. þm. hafi greitt atkv. með þessari lagasetningu án þess að hafa hugmynd um, hvernig þessi útgáfa var, heldur farið eingöngu eftir þessum ummælum blaðanna, og ég efast um, að margir hv. þm. séu farnir að lesa hana enn, þó að þeir tali um hana sem afbakaða útgáfu.
Ég get ekki farið ýtarlega út í, þegar talið barst að öðru efni, eins og Fornritaútgáfunni. Ég veit vel, að hv. þm. S.-Þ. vill eitt af menningarfyrirtækjum landsins feigt, og það er af persónulegum ástæðum, af því að hann komst í óvináttu við aðalframkvæmdastjóra þess, Sigurð Nordal. Ég hef áður bent á, hvílík fjarstæða það er, ef Menningarsjóður, sem hefur haldið þeirri reglu undanfarið að gefa almenningi bækur með framlagi úr ríkissjóði, keppi við aðra ríkisútgáfu um útgáfu fornritanna, og einn úr stjórn Fornritafélagsins hefur sagt í mín eyru, að Fornritaútgáfan væri dauðadæmd, ef Menningarsjóður ætti að gefa ritin þannig út samtímis. (JJ: Hver var það?). Það var Sigurður Nordal. Hann sagði, að Fornritaútgáfan væri dauðadæmd, ef Menningarsjóður ætti þannig að gefa sömu rit samtímis út. Hugmynd þeirra, sem réðu í Menntamálaráði, var sú að gefa hverja sögu samtímis út af Menningarsjóði og hún kom út hjá Fornritaútgáfunni, með sömu skýringum, en svo voru þeir svo fávitrir að vilja láta sleppa formálunum, sem skrifaðir eru fyrir ritum Fornritaútgáfunnar, en setja nýja formála frá sjálfum sér, en sáu ekki, að það var ekki nein leið að ætla sér að nota skýringarnar, en sleppa formálanum, þar sem í skýringunum er oft vitnað til formálans. Auðvitað takast þessir samningar aldrei milli Fornritaútgáfunnar og Menningarsjóðs. En ef á að gera Fornritaútgáfuna að alþýðuútgáfu, þá á að styrkja Fornritafélagið til að gefa ritin út, en Menningarsjóður getur þar ekki komið til greina nema þá með dreifinguna. Þessari alþýðuútgáfu liggur ekki svo mjög á, en þó gæti hún farið að hefjast, af því að ýmsar bækur Fornritaútgáfunnar eru nú uppseldar, en vitanlega ætti alþýðuútgáfan að koma nokkuð á eftir, fylgja í kjölfarið.
Þá sagði hv. þm., að það væri mótsögn í því að segja, að Menningarsjóður gæti ekki gefið út fornsögurnar samhliða Fornritaútgáfunni, en halda jafnframt fram, að aðrir mættu gefa sögurnar út. Þetta er auðvitað allt annað mál. Hvaða frjáls útgáfa sem er frá einstaklingum getur aldrei gert Fornritaútgáfunni neitt tjón, því að hún byggist á frjálsri samkeppni við þær bækur. Öðru máli gegnir um Menningarsjóð, sem dreifir bókunum út svo að segja gefins.
Annars skal ég ekki tala langt mál um þetta. Það verður rætt síðar og kemur þessu máli ekki beinlínis við.
Ég mun ekki fara langt út í að svara hv. þm. Dal. Ég var í raun og veru búinn að svara honum fyrir fram, og var ekki nema eðlilegt, að hann væri hvassyrtur í gær, og hafði ég ekki nema ánægju af að hlusta á ræðu hans. Hann hefur samið hana allhnyttilega og komizt skemmtilega að orði að öðru leyti en innihaldið snerti og bar ekki vott um annað en þann barnaskap, sem virðist vera allútbreiddur í þessari d., þegar talað er um þessi mál. Ég mun síðar hafa næg tækifæri til að deila við þennan hv. þm., en það, sem ég vildi með ásökun minni í hans garð, var ekki nema að fletta ofan af þeirri hræsnisgrímu, sem sumir svokallaðir bókamenn bera á sér. Þeir eru viðkvæmir og uppvægir, ef talið berst að fornbókmenntunum, en eru svo hinir afturhaldssömustu, ef um nútímabókmenntir er að ræða. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum um þennan hv. þm. Ég vissi, að hann var bókamaður, en svo kemur í ljós, að hann er hinn afturhaldssamasti allra manna í þessum málum, þar sem hann hefur greitt atkv. á móti öllu, sem við kom rithöfundum og listamönnum. Hann greiddi atkvæði á móti, að rithöfundar og listamenn væru teknir inn í 18. gr., hann var á móti, að styrkur væri hækkaður til þeirra, og ég man ekki betur en hann greiddi atkv. á móti, að styrkurinn væri hækkaður til Fornritaútgáfunnar.
Ég verð að láta mörgu ósvarað, sem hér hefur komið fram, enda hafa margir hv. þm. verið með sömu hugsunina, sem hver hefur tekið upp eftir öðrum. Eitt er þó það, sem ég get ekki látið ósvarað, hið eilífa stagl, sem hér er um það, að útgáfa Halldórs Kiljan Laxness sé afbökuð útgáfa. Það er ekki svaravert, sem hv. þm. S.-Þ. segir, þar sem hann kallar hana skrílútgáfu og tæpitunguútgáfu. Það er óskiljanlegt, hvað slíkar öfgar um slíka útgáfu eiga að þýða. Hv. þm. Dal. segir, að þessi útgáfa sé öll skrumskæld að efni og máli. Hvað á svona lagað tal að þýða? Jafnvel svo greindur maður sem hv. 6. þm. Reykv., ég man ekki betur en hann talaði um þetta sem þjóðskemmdarstarfsemi, sem gæti verið nauðsynlegt að stöðva, áður en óbætanlegt tjón hlytist af. Mér er ómögulegt að skilja, hvert þessir hv. þm. eru að fara. Það er eins og maður sé hér kominn innan um börn í tossabekk. Ég skil ekki, að þeir hafi lesið útgáfu Laxness af Laxdælu, en þeir vitna í ummæli háskólakennaranna og þykjast vel hafa veitt. En mér er spurn: Hafa þeir ekki lesið útgáfuna sjálfir, eða treysta þeir því ekki, að þeir séu dómbærir á þetta sjálfir? Einn hv. þm., sem hefur ekki verið við þessa umr. hér fyrr, hv. 1. þm. Reykv., andmælti mjög þessum l., er þau voru sett, og hann sagði um útgáfu Laxness af Laxdælu, að sér hefði þótt hrein unun að lesa hana.
Þótt H. K. L. hefði skotið inn í söguna einstaka setningu, sem hann hefur alls ekki gert, nema þar, sem hann hefur fellt kafla úr henni, sem voru sögunni óviðkomandi, þótt hann hafi þannig með einni og einni setningu tengt aftur saman eftir slíkar úrfellingar, þá get ég ekki séð, að af því stafi neinn þjóðarvoði. Ég skil ekki í því, að H. K. L. sé neitt minni rithöfundur en höfundur Laxdælu, með allri virðingu fyrir honum. Það er vitað, að H. K. L. er einn með beztu rithöfundum, sem Ísland hefur átt, og þá ætti það ekki að vera nein þjóðskemmdarstarfsemi, þótt hann skyti einni og einni setningu inn í Laxdælu.
Þá ætla ég að svara örlítið hv. 2. þm. N.-M. Það, sem hann hafði mest við að athuga í ræðu minni, var það, að ég taldi hættulaust fyrir fornritin, þótt gefnar væru út af þeim lélegar útgáfur, — þær mundu dæma sig sjálfar. Hann las upp nokkra kafla úr Hrafnkels sögu og benti á, að nokkur meiningarmunur kæmi fram í útgáfum H. K. L. og Sigurðar Kristinssonar af henni. Þetta er ekkert undarlegt, því að H. K. L. fór eftir allt annarri útgáfu en Sigurður Kristjánsson. Þetta sannar því ekkert. Hv. þm. ætti að vita það, að það eru til mörg og mismunandi handrit af flestum fornritunum, og milli þessara handrita verða fræðimenn að velja, þegar þeir gefa ritin út. Þeir fara þá jafnan eftir því handriti, sem þeir treysta bezt og stundum velja þeir sinn kaflann úr hverju handritinu. Handritunum ber alls ekki saman, og mönnum tekst sjaldan að finna, hvernig hinn upprunalegi texti sögunnar hefur verið. Það veit enginn, hvernig sögurnar hafa verið upphaflega, en fræðimenn fara eftir því, sem þeir álita réttast. Hér er því ekki um neinn sóðaskap að ræða. Útgáfa H. K. L. af Hrafnkötlu er prentuð orðrétt eftir handritinu, sem stuðzt er við, og aðeins breytt um stafsetningu. Það var heldur engin þörf að breyta þeirri sögu, vegna þess að hún er svo stutt og engum óviðkomandi köflum skotið inn í hana. Það eru ekki nema löngu sögurnar; sem þarf að stytta. Fram að þessu hafa engin þessara fornrita verið gefin út nema af málfræðingum, og þær útgáfur eru ærið misjafnar, enda eru málfræðingarnir misjafnir eins og aðrir. Það er sjálfsagt eins vel hægt að halda því fram, að sumar af þessum útgáfum séu skemmdarstarfsemi eins og útgáfa H. K. L. Það er t.d. maður, sem gefur út Grettissögu og heldur því fram í formálanum, að hver stafkrókur í sögunni sé sannleikur. Þessu til stuðnings segir hann, að víða um land hafi fundizt hellur; sem Grettir hafi tekið upp. Það má segja, að sá, sem gefur Grettissögu þannig út, hann vinni skemmdarstarfsemi, því að það er vitað, að margt í Grettissögu er skáldskapur, en ekki frásögn af sönnum viðburðum.
Ég er á alveg gagnstæðri skoðun við þessa hv. þm., sem hér hafa andmælt útgáfu Laxness af Laxdælu. Ég held því fram, að við megum vera þakklátir fyrir það, að einn af beztu listamönnum þjóðarinnar skuli nú vera farinn að gefa þessar sögur út sem listaverk, og með því að hafa nútíma stafsetningu á þeim vill hann gera þær aðgengilegri fyrir nútíma lesendur, svo að æskan í landinu njóti þeirra eins og þau hefðu verið skrifuð í dag. Það er því misskilningur hjá hv. 6. þm. Reykv. að halda því fram, að það sé andstætt við skilning manna á samhenginu milli nútímamáls og þess máls, sem sögurnar eru ritaðar á, að gefa þær út með nútímastafsetningu og það fjarlægi menn enn meira frá forntungunni. Ég held, að þetta sé alveg öfugt. Einmitt með því að gefa sögurnar út með nútímastafsetningu, þá sjá menn, að þetta eru ekki fjarlægar bókmenntir, heldur eru þær einmitt á sama máli og við tölum í dag. Ég er því hissa á þeim hv. þm., sem hér hafa talað, hvað þeir geta verið staurblindir í þessu máli.
Það er aðalatriðið, að Íslendingasögurnar eiga ekki að vera eins og dauður forngripur, heldur eiga þær að vera lifandi í lífi og menningu þjóðarinnar, og það geta þær fyrst orðið, ef þær fá að taka á sig nútímabúning og losna við hinn dauða svip málfræðinganna. Annars þarf ég ekki að vera langorður um þessa útgáfustarfsemi. Það er lagasetningin sjálf, sem hefur valdið því, að þetta frv. er komið fram. Þetta frv. fer fram á að afnema l., sem eru hin mesta fjarstæða og að mínum dómi hlægileg og bera vitni um algert skilningsleysi á því, sem um er að ræða. Hv. 6. þm. Reykv. taldi, að fram kæmi ósamræmi hjá mér, þar sem ég væri að berjast fyrir höfundarréttinum, en vildi hins vegar, að þessi löggjöf væri felld úr gildi, þannig að lögin mættu ekki taka til eldri rita. Þetta er alger misskilningur hjá hv. þm. með því að vernda höfundaréttinn, sem er 50 ár, er verið að tryggja það, að höfundarnir ráði yfir verkum sínum og njóti ágóðans af þeim, meðan þeir lifa, en eftir þann tíma eru allar bækur í heiminum orðnar alþjóðleg eign og sameiginlegur menningararfur. Það er því fáránlegt að heyra hv. þm. Dal. tala um Laxdælu sem einhverja einkaeign Dalamanna. En það er hún ekki; Laxdæla er fyrir alla Íslendinga og fyrir allan heiminn, eins og öll „klassísk“ rit, sem komin eru frá rithöfundaréttinum. Þau eru þá orðin alheimseign, og við megum gera með þau hvað sem við viljum. Þannig er t.d. um rit Shakespeare's, grísku fornritin sem og öll önnur „klassisk“ verk. Allar menntaðar þjóðir líta á þau sem sameiginlegan menningararf allra þjóða, sem hver þjóð megi nota sér til hins ýtrasta, og á þessum skilningi byggist það, að það þekkist ekki hjá nokkurri þjóð löggjöf, sem helgar einhverri sérstakri þjóð rétt yfir verkum sínum að 50 árum liðnum frá útkomu þeirra. Af þessu leiðir, að íslenzka ríkið getur ekki tekið sér neinn rétt yfir fornritunum og lög um það geta aðeins tekið til Íslands eins og hljóta að verka hlægilega út á við. En hvernig stendur á þessum barnaskap hér á Alþ.? Það hefur nú upp á síðkastið komið upp mikil tilhneiging til ofstjórnar á öllum sviðum. Ef komið hefur út ný bók, þá hafa forráðamenn sumra flokka orðið hræddir, og ef á að koma út ný útgáfa af Íslendingasögunum, þá verða þeir hræddir. Ég held, að ég muni líka eftir hræðslunni, sem greip forráðamenn sumra stjórnmálaflokka, þegar það fréttist, að það ætti að koma út í 5 bindum rit um bókmenntir og sögu Íslendinga eftir Sigurð Nordal, prófessor í þessum fræðum við Háskóla Íslands. Þetta er nákvæmlega sama fyrirbrigðið og með Laxdælu. Þegar hún kom út, ruku þessir menn upp til handa og fóta og settu l. á Alþ. um að banna svona útgáfur af fornritunum. En hvernig stendur á þessu? Þetta er vegna þess, að fyrir þessu stendur maður, sem er ekki andlega heilbrigður, en það er hv. þm. S-Þ. En það er furðulegast, að Alþ. skuli hlaupa eftir svona firrum í einum andlega sjúkum manni. Það er alveg stórhneykslanlegt fyrir alla þjóðina. Ef tímarnir hefðu verið aðrir, hefði svona ofstjórnarhneigð áreiðanlega breytzt í fasisma. Þá hefði fyrir löngu verið farið að banna ýmis rit og síðan að brenna þau, og ef hv. þm. S.-Þ. hefði verið einræðisherra hér, þá hefði hann ekki ver ið seinn á sér að halda bókabrennur hér. Það er líka hægt að ímynda sér jafnföngulegan mann. og hv. þm. Dal. rogast með bækur úr safninu sínu til þess að láta brenna þær að boði Jónasar. Í þessu kemur fram vantraust á dómgreind manna. En ég er alveg hissa á því, að maður eins og hv. 3. landsk. skuli vera í flokki með þessum monnum og halda því fram, að hér eigi að vera lagasetning um þetta. Það er eins og menn álíti, að Íslendingar séu einhverjir skrælingjar og það þurfi að hafa vit fyrir þeim. Það er eins og þeir hafi enga dómgreind og að þeir gerspillist svo af því að lesa þessa umræddu útgáfu, að þeir gleymi alveg frumritunum sjálfum. Ég er viss um það, að íslenzka þjóðin er dómbærari á þetta heldur en þeir hv. þm., sem hér hafa talað á móti þessu frv. Það, sem ég hef fyrst og fremst að setja út á þessa lagasetningu, er það, að hún er hlægileg og þekkist hvergi meðal siðaðra þjóða. Ég hlýt því og að mótmæla af sömu ástæðu brtt. frá þeim hv. þm. Dal. og hv. 1. þm. N.-M., sem á að tryggja það, að komið verði í veg fyrir afbakaðar útgáfur af fornritunum. Þessi brtt. sýnir aðeins, hvílíkir skelfingar tossar þessir hv. þm. geta verið, og þetta er í samræmi við það, sem þeir halda fram, að útgáfa H. K. L. af Laxdælu sé afbökuð, en hún er það alls ekki. En þar sem svo margir hafa talað hér um þetta mál og haft sama skilning á þessu og hv. 6. þm. Reykv., þá get ég ekki skilið, að það sé af illum hvötum runnið hjá þeim öllum, heldur mun það vera af því, að þeir hafa svo þröngt sjónarmið. Þeir eru komnir inn í þröngan kút, sem þeir geta ekki brotið af sér. Þeir eru eins og hv. þm. Dal. Það er einhver skel utan á honum, sem hann getur ekki brotizt út úr.
Ég verð að virða það við hv. 6. þm. Reykv., að hann talaði þó eingöngu um málið, og það vottaði ofurlítið fyrir skilningi hjá honum. Hann er líkastur fugli, sem ekki hefur enn brotið af sér skurnið, en ég get trúað því, að hann eigi það eftir og verði fleygur síðar, enda á hann til þeirra að telja, sem hafa verið dómbærir á þessi mál, en það má segja Benedikt Sveinssyni til maklegs lofs, að þær Íslendingasögur, sem hann hefur séð um útgáfu á, hafa verið við almenningshæfi. Það er munur eða hjá Fornritafélaginu, þar sem t.d. er notað tvenns konar æ og stundum hafður broddur undir ö, en fæstir vita, hvað þetta á að tákna. (ÞÞ: Það var þó Nordal, sem réð um krullurnar). Já, en Nordal hefur ekki látið sér detta í hug, að þessi útgáfa ætti að vera fyrir almenning, heldur fyrir menn í æðri skólum og útlenda fræðimenn, sem vilja kynna sér þessi fræði.
Hv. 6. þm. Reykv. fann að því, að ég skyldi ekki vilja bíða eftir dómi hæstaréttar í Hrafnkötlumálinu, en að mínum dómi gera þessi lagaboð kennslumrh. að nokkurs konar dómstól í landinu. Ég veit það líka, að hæstiréttur er ekki mjög gjarn á það að vísa málum frá vegna þess, að þau stríði á móti stjskr., og það gæti hugsazt, að í dómi hæstaréttar í þessu máli væri ekkert sagt um það, hvort þessi l. væru réttmæt eða ekki. Ég hef talað um þetta við einn hæstaréttardómarann, og hann sagðist ekki vita, hvort svona l. héldu eða ekki, en það hefði ekki átt að setja svona l. (JJ: Er nú þessi hv. þm. farinn að „agitera“ í hæstaréttardómurum líka?). Ég hef nú haldið, að það mætti tala við þá eins og aðra menn. En ef til vill verður næst fundið upp á því að setja lög, sem banna mönnum að tala við hæstaréttardómara. Það væri ekki vitlausara en margt annað, sem hv. þm. S.-Þ. hefur komið fram með. Ég held einmitt, að Alþ. ætti að sjá sóma sinn í því að afnema þessi l. nú þegar og bíða ekki eftir úrskurði hæstaréttar, en þessi l. eru bæði hneykslanleg og hlægileg. Eða hvernig halda menn, að yrði litið á það erlendis, ef það fréttist, að einn bezti rithöfundur þjóðarinnar, sem hefur þekkt nafn erlendis, væri dæmdur í fangelsi fyrir stafsetningu?