02.04.1943
Efri deild: 87. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2756)
86. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Magnús Jónsson:
Herra forseti. — Ég hef verið fjarstaddur í nokkra daga og því ekki getað fylgzt með gangi málanna. En mér hefur verið sagt, að hér hafi staðið mikil Heljarslóðarorrusta eða orrusta á Bolavöllum um þetta mál.
Þegar þetta Alþ. er búið að sitja í 102 daga, ætlar það að fara að setja þessa undrarófu á halann á sjálfu sér.
Þetta Alþ. er merkilegt fyrir ýmislegt, meðal annars það, að því tókst ekki að mynda stjórn. Þeir sýnast ætla að standa með þessum lögum, sem ekki treysta Íslendingasögunum til að lifa. Þær eru nú orðnar 6 til 7 hundruð ára. Þær hafa verið skrifaðar, og þær hafa verið afbakaðar. Ég hef lesið sýnishorn, sem sýna það, að Íslendingar hafa leyft sér að skrifa þær upp. Þannig eru þær þá komnar fram á okkar daga. Þær hafa farið út um heim, og held ég, að þær hafi aldrei vakið annað en athygli. Og alltaf hafa þær verið án verndar Alþ. En nú rís Alþ. allt í einu upp eins og þeim sé voði búinn, ef ekki eru allt í einu sett lög um útgáfu þeirra. Mun það vera ný útgáfa á Laxdælu, sem kemur svona illa við þetta hálfdeyjandi Alþ. Nú ríði á að þjóta til og teikna mynd. Mætti hugsa sér skopteikningu, þar sem annars vegar væru Íslendingasögurnar, en Alþ. 1942 og 1943 hins vegar.
Hið raunverulega ástand meðal hv. þm. kemur fram í n., sem fjallaði um málið. Hún er þríklofin. Einn vill fella frv., annar samþykkja það og sá þriðji afgreiða það með rökst. dagskrá. Nú er komin brtt. við rökstuddu dagskrána.
Ef Alþ. verður að slíta, áður en það getur myndað stj., er þó gott, að það gæti stutt Íslendingasögurnar. Ég vil hafa útgáfu þeirra frjálsa. Ég hef aldrei hitt svo ofstækisfullan mann, að hann vildi banna að gefa biblíuna út í styttri útgáfu. Við höfum gefið út biblíukjarna og biblíusögur. Ef biblían þykir of löng, er hún bara gefin út í styttri útgáfu. Allt nútímamál er þýðing á eldra máli. Aðalatriðið er að koma sögunum til fólksins á því máli, sem það skilur.
Þetta mál hefur sætt allmikilli gagnrýni í sambandi við útgáfu Kiljans á Íslendingasögum. Ég verð að segja það, að mér finnst Alþ. hafa traust á sér, ef það ætlar að leyfa sér slíkt sem framkomu sína í þessu máli. Ef það ætlar að hliðra sér hjá stóru málunum, en heyja Heljarslóðarorrustu dag eftir dag bara til þess að komast hjá því að afnema önnur eins lög og þessi eru.
Ég hef aðeins heyrt ræðu hv. 7. landsk., sem er sá eini hér, sem vit hefur á þessum efnum og er þeim kunnugur. Auk þess veit hann um skipan svona mála handan við hafið. Gæti ég vel fylgt honum að málum.
Alveg eins og það er sannfæring mín, að Alþ. gerir sér og þjóðinni óvlrðingu með þessari framkomu sinni, álít ég, að það eigi að þvo þennan leiðinlega blett af sér.
Ég lít svo á, að Íslendingasögurnar séu ekki aðeins fyrir Íslendinga, heldur alþjóðaeign. Bækur taka alltaf talsverðri breytingu í þýðingu. Ég býst við, að til sé bragðdauf þýðing t.d. á Odysseifskviðu, en það hefur ekkert að segja. Ef þjóðin er á annað borð svo úr lagi færð, að hún meti meira það, sem úr lagi er fært, þá verður svo að vera. Þótt kapítular eða setningar séu felldar úr, gerir það ekkert. Það, sem mestu skiptir, er efnið sem heild.
Skal ég ekki orðlengja þetta miklu meira. Ég gerði grein fyrir afstöðu minni á sínum tíma.
Ég gæti bezt trúað því, að Laxdæla í hinni nýju útgáfu lifði lengi. Af lestri hennar í nýju útgáfunni hafði ég mikinn unað. Það dró ekkert úr unaðinum, þótt felldir væru úr henni nokkrir kaflar, sem trufla söguþráðinn. Ég hef rætt við lærða menn, sem talið hafa nauðsynlegt að fá stytta útgáfu af Sturlungasögu. Úr henni þyrfti að fella margt, svo að hún yrði aðgengilegri. Fann ég vel til þess, að þetta var rétt athugað, eftir að ég hafði lesið Kristínu Lavransdóttur. (BBen: Heldur þm., að Sturlunga sé sögulegur róman?) Hún er allt frá því að vera sögulegur róman og til þess að vera heimildarrit um sögu þess tíma, sem hún tekur yfir. En mér dettur ekki í hug að trúa því, að allt séu staðreyndir, sem hún fer með.
Alþ. 1942 og 1943 er stóri bróðir, sem ætlar að vernda þessa litlu systur.
Ég vil gera þá grein fyrir mínu atkv., að ég ber fullt traust til Íslendingasagna og greiði atkv. með frv.
Ég gæti út af fyrir sig stutt það, sem miðminnihlutinn ber fram, en með dagskránni gæti ég ekki greitt atkv., og er það undarlegt, að Alþ. skuli að langmestu leyti hafa fallizt á þetta. Þetta mál á að vera óháð flokkum. Ef við getum ekki staðið lagalausir á þessu sviði, hvernig getum við það þá á öðrum?
Ég hef traust á framtaki einstaklingsins og hæfni. Reynslan hefur sýnt, að menn, sem yfir miklum hæfileikum búa, rétta sig af, þótt eitthvað á bjáti fyrir þeim.
Við skyldum sjá, ef komnar væru út nokkrar sóðalegar útgáfur af Íslendingasögunum, hvort þær sönnuðu ekki tilverurétt sinn. Óttinn við þetta fyrirbrigði mundi fá menn til þess að hrökkva við og búast til varnar, eins og hv. þm. S.-Þ. sagði.
Íslendingasögunum er alveg áreiðanlega óhætt, og ég vildi óska, að Alþ. væri eins óhætt.